Gillzenegger um Steinunni Valdísi: „Á hana dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir“

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, ræddi í dag um áskorun Egils Gillzeneggers á menn að nauðga henni. Hann kall­aði Stein­unni Valdísi vænd­is­konu.

Gillzenegger um Steinunni Valdísi: „Á hana dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir“
Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir Grét í þjóð­mála­þætt­inum Silfrinu í dag þegar hún rifj­aði upp málið. Mynd: RÚV

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og þing­maður, ræddi um nauðg­un­ar­hót­anir „nafn­greindra manna“ í Silfrinu á RÚV í dag. 

„Ég sat undir því að þekktir nafn­greindir menn hvöttu aðra karl­menn til þess að fara heim til mín og nauðga mér. Þeir hvöttu til nauð­gana á mér vegna starfa minna í stjórn­málum og vegna þeirra mála sem ég hafði barist fyrir,“ sagði Steinunn Valdís.

Steinunn Valdís var ein 137 kvenna sem greindu frá kyn­ferð­is­legri áreitni, ofbeldi og mis­munun í stjórn­málum í yfir­lýs­ingu í síð­ustu viku.

„Steinunn er port­konan sem vildi breyta orð­inu ráð­herra í ráð­frú fyrir konur.“

„Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, alþing­is­maður. Steinunn er port­konan sem vildi breyta orð­inu ráð­herra í ráð­frú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Stein­unni Valdísi dugar ekk­ert annað en lág­mark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verk­efni að sér. Frétta­stofan ákvað að gefa Ásgeiri Kol­beins­syni frí í þetta skiptið, en Frétta­stofan vill ekki hafa það á sam­visk­unni að Ásgeir finn­ist hang­andi í ljósakrónu í vest­ur­bænum.“

Síðar var Egill Ein­ars­son feng­inn af fyr­ir­tæk­inu Já til þess að hanna for­síðu síma­skrár lands­manna, og valdi hann að birta mynd af sjálfum sér á káp­unni með fim­leika­stúlkum úr Gerplu. Þá gaf hann út bækur og þætti, meðal ann­ars Mannasiði Gillz, Lífs­leikni Gillz og Heilræði Gillz. Þar ætl­aði hann að leiða „kyn­bræður sína í allan sann­leika um hvað það er að vera karl­maður, hvernig á að heilla hitt kynið og bregð­ast við hinum ýmsu aðstæðum.“

Sjálfur sagði Egill að um húmor hafi verið að ræða, ekki settan fram af honum, heldur per­són­unni Gillzenegger.

Meiri umræða um nauðgun

Síma­skráin 2011Gillzenegger var gert hátt undir höfði þrátt fyrir húmor sem sner­ist um að hvetja til nauð­gana á nafn­greindum konum.

Árið sem síma­skráin kom út kærðu tvær ungar stúlkur hann fyrir nauðgun, önnur þeirra 18 ára gömul stúlka sem sótti fjar­þjálfun hjá Agli. Hvorugt málið fór fyrir dóm, heldur var þeim vísað frá, ann­ars vegar af lög­reglu og hins vegar af rík­is­sak­sókn­ara þar sem þau þóttu ekki lík­leg til sak­fell­ingar. Áður hafði Egill sent yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla þar sem hann sak­aði aðra stúlk­una um að hafa sent á sig hand­rukk­ara til að kúga af sér fé, auk þess sem hann kærði hana og tvær vin­konur hennar, sem báru vitni í mál­inu, fyrir rangar sak­ar­giftir. Það mál var einnig fellt niður. 

Í kjöl­farið stefndi Egill fjórum ung­mennum fyrir meið­yrði. Áður höfðu þau fengið við­vörun, þar sem farið var fram á að þeir myndu draga ummæli sín til baka, við­ur­kenna að þau væru ekki rétt og borgað Agli hálfa milljón króna, ella yrði þeim stefnt fyrir dóm. 

Eftir að Hæsti­réttur sýkn­aði eitt þeirra, Inga Kristjón Sig­mars­son, af æru­meið­ingum fyrir að skrifa „Fuck you rap­ist bast­ard“ á mynd af Agli sem hann birti á Instagram á þeim for­sendum að um gild­is­dóm væri að ræða, vís­aði Egill mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, þar sem hann vann málið. „Það er ljóst að dómur Hæsta­réttar stenst ekki kröfur Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans um tak­mörk tján­ing­ar­frelsis. Það er ekki þægi­leg til­finn­ing að vera sak­laus maður sitj­andi undir ummælum sem þessum,“ sagði Egill í sam­tali við Vísi af því til­efni. 

Í við­tali við ung­linga­blaðið Monitor 2012 kvart­aði Egill undan þeim áhrifum á líf hans sem nauðg­un­ar­kærur og umræða um það höfðu.

„Já, ég er fín fyr­ir­mynd. Eða ég vona það. Hvað er fyr­ir­mynd? Þeir sem eru alltaf að töngl­ast á að ein­hver sé vond fyr­ir­mynd hafa örugg­lega frekar tak­mark­aða trú á ungu fólki. Ég veit að vinstri­s­inn­aðir femínistar eru ekk­ert sam­mála því að ég sé góð fyr­ir­mynd. Mér finnst ólík­legt að það muni ger­ast að ungir strákar velji sér ein­hverjar lopa­húfur sem fyr­ir­myndir. Er eitt­hvað að því að ungir strákar velji sér fyr­ir­mynd sem er reyk­laus, dóp­laus, í góðu formi og neiti að láta valta yfir sig?“

Hér er færsla Gillzeneggers í heild um Stein­unni Valdísi og fleiri nafn­greindar konur.

Færsla Gillzeneggers 

Frétta­stofan leggur mikla áherslu á að eft­ir­far­andi konur fái mök og það strax: (Ef Ásgeir Kol­beins­son treystir sér ekki í þetta verk­efni þá hefur Frétta­stofan náð samn­ingum við eft­ir­far­andi menn til að afgreiða „döm­urnar“: Buka Wamukota Damnida Wanjala, Yao Vinza Yohanze Mohumbu og Jamal Johnson.) 

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stýra þing­flokks vinstri grænna. Drífa Snædal fór mik­inn í Kast­ljós­inu á dög­unum þar sem hún sat á móti Agli Helga­syni og reyndi að rífa kjaft. Aldrei hefur kven­maður misst jafn mikið magn af saur í Kast­ljós­inu áður. Drífa tal­aði í hringi og vissi ekki hvort það voru páskar eða jól. Frétta­stofan hafði sam­band við Þórhall Gunn­ars­son rit­stjóra Kast­ljóss og hafði hann þetta um málið að segja: „Ég vil helst ekki tjá mig um málið en ég get sagt að það er ennþá verið að reyna að þrífa stúd­íóið og á mínum 35 ára ferli hef ég aldrei séð annað eins“. Frétta­stofan hefur til­nefnt Ásgeir Kol­beins­son og Jamal Johnson í að titt­linga Drífu ASAP.

Kolbrún Hall­dórs­dóttir, alþing­is­maður. Kolbrún hefur aldrei fengið stifan lim og því hefur Frétta­stofan ákveðið að senda Ásgeir, Jamal, Buka og Yao alla í þetta verk­efni. Kolbrún topp­aði sjálfa sig í leið­indum þegar hún stakk upp á því að nýfædd börn yrðu ekki sett í blá eða bleik föt. Kolbrún er í fullri vinnu við að vera óþol­andi og tala með rass­gat­inu og það er kom­inn tími til að þagga niður í henni end­an­lega og munu þessir herra­menn sem Frétta­stofan taldi upp áðan fylla hana eins og hátíð­ar­kalkún. Það mun von­andi vera til þess að hún stein­grjót­haldi­kjafti og fari að haga sér.

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, alþing­is­maður. Steinunn er port­konan sem vildi breyta orð­inu ráð­herra í ráð­frú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Stein­unni Valdísi dugar ekk­ert annað en lág­mark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verk­efni að sér. Frétta­stofan ákvað að gefa Ásgeiri Kol­beins­syni frí í þetta skiptið, en Frétta­stofan vill ekki hafa það á sam­visk­unni að Ásgeir finn­ist hang­andi í ljósakrónu í vest­ur­bænum.

Anna Margrét Björns­dóttir, blaða­maður. Frétta­stofan verð­launar að sjálf­sögðu fólk sem gerir góða hluti og hún Anna Margrét Björns­dóttir er að gera mjög góða hluti og fær hún Blást­ursverð­laun Frétta­stof­unnar í ár. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Frétta­stof­unnar hefur Anna bætt öll met í blæstri á sam­starfs­fé­lögum sínum og yfir­mönnum á Frétta­blað­inu. Heim­ild­ar­maður Frétta­stof­unnar vildi ekki koma undir nafni en hann hafði þetta að segja: „Ég hef aldrei séð annað eins, hún gengur um fyr­ir­tækið eins og mennsk Nilfisk ryk­suga. Hún er dug­legri að ryk­suga inni hjá yfir­mönn­unum en af og til verðum við strák­arnir niðri lucky og hún „ryksugar“ okkur ef þú veist hvað ég á við.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár