Sjá eftir að hafa ekki stöðvað „kynferðislega áreitni“ Brynjars

Fund­ar­stjóri og fund­ar­maður á fundi Sið­menntar sjá eftir því að hafa ekki gripið inn í. „Ég fann mig knúna til að biðja hana afsök­unar á að hafa ekki stigið fram og beðið mann­inn um að hætta,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir í kosn­inga­þætti Stöðvar 2 vegna til­burða Brynjars Níels­sonar gagn­vart Stein­unni Þóru Árna­dóttur.

Sjá eftir að hafa ekki stöðvað „kynferðislega áreitni“ Brynjars

Helga Vala Helga­dóttir, fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, hringdi í Stein­unni Þóru Árna­dóttur, þing­konu Vinstri grænna, og bað hana afsök­unar á að hafa ekki gripið inn í vegna til­burða Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­vart henni á fundi Sið­menntar með full­trúum stjórn­mála­flokka í gær. 

Á fund­inum sagð­ist Brynjar vera skot­inn í Stein­unni, hall­aði sér upp að henni meðan hún tal­aði og spurði hvort hann mætti kyssa hana. 

Bjarni Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Sið­menntar sem stýrði fund­inum, tjáir sig um atvikið á Facebook og seg­ist hafa upp­lifað „ofbeldi“ og „kyn­ferð­is­lega áreitni“. Honum hafi orðið veru­lega brugðið og sjái eftir því að hafa ekki tekið harðar á fram­göngu Brynjars.  

Hefði átt að stöðva Brynjar

„Ég var á þessum fundi og þetta var algjör­lega ömur­legt,“ sagði Helga Vala í kosn­inga­þætti Stöðvar 2 í kvöld.

„Ég hafði sam­band við Stein­unni í gær, því ég fann mig knúna til að biðja hana afsök­unar á að hafa ekki stigið fram og beðið mann­inn um að hætta. Því þetta var ekki í eina skiptið sem hann kom fram við hana með þessum hætti. Hann bað hana um að kyssa sig en hann var líka enda­laust að segja henni hvað hann væri skot­inn í henni og eitt­hvað – ofsa fynd­inn! – en því miður á var þetta alveg ótrú­lega ósmekk­legt.“

„Ég fann mig knúna til að biðja hana
afsök­unar á að hafa ekki stigið fram
og beðið mann­inn um að hætta“

Aðrir fram­bjóð­endur tóku undir þetta, en Sigríður Andersen, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vildi ekki gera mikið úr atvik­inu. 

Hún sagði að sér hefði fyrst verið brugðið þegar hún las frétt um málið. Svo hefði hún hins vegar horft á mynd­bandið. 

Sigríður Andersenstarf­andi dóms­mála­ráð­herra og fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

„Þetta var nú ekki eins og ég hafi ímyndað mér heldur var það aug­ljóst að hann var bara inni­lega sam­mála henni Stein­unni Þóru um það sem hún var að ræða þarna, og setur þetta svona fram, sem er nú ekki skemmti­legt,“ sagði Sigríður. „Þetta er nú ekki boð­legt að mínu mati, sér­stak­lega við svona aðstæður, við erum að ræða háal­var­leg mál, kosn­inga­mál.“ 

Sigríður lagði áherslu á að Brynjar hefði beðist afsök­unar. „Ég sá ekki betur en hann hefði beðist afsök­unar, ég held hann hafi beðið hana afsök­unar og gert það sjálfur strax í dag þegar hann sá hvaða við­brögð þessi ummæli vöktu sem maður hlýtur að skilja.“

„Partur af pólitískri umræðu dagsins í dag“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona og fram­bjóð­andi Vinstri grænna, brást við orðum Sigríðar og sagði að sér þætti með ólík­indum að það þyrfti fjöl­miðlaum­fjöllun til að Brynjar átt­aði sig á því að þarna hefði hann farið mjög hressi­lega yfir mörk þess sem eðli­legt er, ekki aðeins í póli­tískri umræðu heldur í opin­beru rými almennt.

Svandís Svav­ars­dóttirþing­kona og fram­bjóð­andi Vinstri grænna

„Og það er einmitt þetta sem #metoo-bylt­ingin gengur út á, þar sem konur stíga fram og segja frá því að þær hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni á furðu­leg­ustu stöðum í sam­fé­lag­inu. Það að við skulum sjá full­trúa feðra­veld­is­ins fara fram með þessum hætti í beinni útsend­ingu, það bara sýnir okkur að þessi umræða er sann­ar­lega mik­il­væg og þess virði, og hún er partur af póli­tískri umræðu dags­ins í dag. Þetta sýnir líka að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að skoða sinn mál­flutn­ing og sína hegðun í þessum mála­flokki.“

Hér greip Sigríður fram í fyrir Svandísi. „Þetta hefur nú ekk­ert með Sjálf­stæð­is­flokk­inn að gera,“ sagði hún. Sem kunn­ugt er er Brynjar Níelsson þing­maður Sjálfsætð­is­flokks­ins og gegndi um nokk­urra mán­aða skeið for­mennsku í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fyrir hönd stjórn­ar­meiri­hlut­ans. Hann er í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. 

„Afsökunarbeiðni dónans“

Þegar Þór­hildur Sunna var innt eftir við­brögðum sagði hún að ef fram­koman hefði verið grín hjá Brynjari væri húmor­inn mjög ósmekk­legur. Atvikið og við­brögð Brynjars væru lýsandi fyrir það sem konur þyrftu sífellt að þola.

„Þetta er auð­vitað mjög lýsandi fyrir það sem við lendum ítrekað í, að það sé verið að „gefa okkur undir fót­inn“ í gríni… og ef við tökum því ekki nógu vel þá erum við bara alltof til­finn­inga­samar.“ Sagði Þór­hildur að afsök­un­ar­beiðni Brynjars væri „þessi tíbíska afsök­un­ar­beiðni dón­ans sem áttar sig ekki á að hann þurfi að taka ábyrgð á eigin gjörðum. Hann segir, ég biðst afsök­unar ef ég móðg­aði ein­hvern í stað þess að segja: ég hag­aði mér eins og fífl og biðst afsök­unar á því.“

„Ef við tökum því ekki nógu vel þá
erum við bara alltof til­finn­inga­samar“

Þegar RÚV fjall­aði um atvikið á fund­inum í dag gerði Brynjar lítið úr mál­inu og sagði hegðun sína ekki hafa verið óvið­eig­andi. „Er öll kímni­gáfa á þessu landi dauð?“ sagði hann og bætti við: „Ef hún upp­lifir þetta eitt­hvað óvið­eig­andi þá talar hún bara um það við mig og þá biðst ég afsök­unar á því, það var auð­vitað ekki til­gang­ur­inn. Bara að taka undir það sem hún var að segja. En hún talar bara við mig sjálf, ef menn vilja nota svona lagað í kosn­inga­báráttu þá gera þeir það.“ Jafn­framt kvart­aði Brynjar undan því að umræðan væri ofstæk­is­full. 

Segist hafa upplifað ofbeldi

Bjarni Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Sið­menntar, var fund­ar­stjóri á fund­inum þar sem atvikið átti sér stað. Hann lýsir atvik­inu með eft­ir­far­andi hætti á Facebook: 

Ég upp­lifði nokkuð nýtt í gærkveldi sem ég hefði gjarnan vilja vera án. Ég var funda­stjór­inn á þessum fundi. Þegar Brynjar spyr hvort hann megi kyssa Stein­unni Þóru upp­lifði ég ofbeldi sem ég hafði hingað til bara lesið um. Kyn­ferð­is­lega áreitni með ófyr­ir­leit­inni spurn­ingu. Í þeirri stöðu hefði ég lík­lega átt að bregð­ast öðru­vísi við en ég gerði en sjokkið sem ég upp­lifði gerði það að verkum að minna varð úr and­mælum. Ég eig­in­lega lam­að­ist, en það var auð­vitað Steinunn Þóra sem varð fyrir ofbeld­inu, ekki ég. Konur hafa á und­an­förnum vikum opnað fyrir umræðu um marg­vís­legt ofbeldi sem þær verða fyrir og það eru karl­menn sem beita því. Ég læt orð Þórdísar Elvu Þor­valds­dóttur úr grein hennar „Áskorun um #stráka­hitt­ing“ vera loka­orðin: „Ég vil að karlar tali sín á milli um hvað þeir, per­sónu­lega, geti gert til að draga úr ofbeldi gegn konum.“

Skilur að sumum hafi þótt kersknin óviðeigandi

Eftir að málið hafði vakið hörð við­brögð í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum birti Brynjar eft­ir­far­andi stöðu­upp­færslu á Facebook: 

Hvað maður segir og gerir tekur oft­ast mið af eigin veru­leika. Mér varð á á póli­tískum fundi í gær að lýsa yfir ánægju með mál­flutn­ing Stein­unnar Þóru með því að spyrja hana hvort ég mætti kyssa hana. Með þeim hætti var ég að slá á létta strengi og hélt að öllum væri ljóst að ekk­ert annað lægi að baki. Hins vegar eftir á að hyggja mátti mér vera ljóst, sér­stak­lega í ljósi umræð­unnar í sam­fé­lag­inu, að þetta kynni sumum að finn­ast óvið­eig­andi. Þegar ég vissi að Stein­unni Þóru hefði fund­ist þetta óþægi­legt hafði ég strax sam­band við hana og baðst vel­virð­ingar á þessum orðum mínum. Segja má að þessi kerskni hafi verið mis­heppnuð sem ég biðst vel­virð­ingar á og mun örugg­lega læra af.

Skömmu seinna birti hann aðra stöðu­upp­færslu og gerði að gamni sínu:

Jæja, maður hefur lagt sitt af mörkum und­an­farnar vikur til að útvega efni í Skaupið. Kannski að ein­hver virði þá við­leitni í kjör­klef­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár