Þorgerður Katrín tekur við af Benedikt – vikið frá kynjareglu

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar, sagði af sér sem for­maður flokks­ins.

Þorgerður Katrín tekur við af Benedikt – vikið frá kynjareglu

Benedikt Jóhann­es­son er hættur sem for­maður Við­reisnar og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­kona flokks­ins og starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra er tekin við for­ystu­hlut­verk­inu.

Þing­flokkur Við­reisnar kom sér saman um þetta í dag og var ákvörð­unin „stað­fest af ráð­gjaf­ar­ráði flokks­ins“ að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu. 

Benedikt ákvað sjálfur að stíga til hliðar sem for­maður og til­kynnti ákvörðun sína á fundi með þing­flokki og stjórn flokks­ins. Á sama fundi var ákveðið að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, odd­viti fram­boðs Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, tæki við hlut­verki hans. 

Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir mun áfram gegna vara­for­manns­hlut­verki í flokknum. Að þessu leyti er hin nýja skipan for­ystu Við­reisnar á skjön við 4. mgr. greinar 5.1. í sam­þykktum flokks­ins, en sú regla felur í sér að „for­maður og vara­for­maður skulu ekki vera af sama kyni“. Á fund­inum í kvöld var til­kynnt sér­stak­lega að gera þyrfti und­an­þágu frá umræddri reglu. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar eru ekki allir á eitt sáttir með for­manns­skiptin og hvernig staðið var að þeim. Stundin hefur rætt við trún­að­ar­menn í flokknum sem segja að sér hafi brugðið hvernig ákvarð­ana­tök­unni var háttað. Eðli­leg­ast hefði verið að fela Jónu Sólveigu, vara­for­manni Við­reisnar, að taka við kefl­inu af frá­far­andi for­manni. Í stað­inn hafi þing­flokk­ur­inn og stjórn flokks­ins tekið ákvörðun um for­manns­skipti án sam­ráðs við gras­rót­ina og falið ráð­gjafa­ráð­inu að stað­festa þá ákvörðun.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár