Vitnisburður Bjarna Benediktssonar í Vafningsmálinu stangast á við gögn

Bjarni Benediktsson tók virkan þátt í fjár­festingum félags föður síns Hafsilfurs ehf. sem var stór hluthafi í Glitni á árunum fyrir hrun. Í gögnunum sem Stundin fékk í gegnum breska blaðið The Guardian eru mörg skjöl sem sýna að bankinn leit á Bjarna sem eiganda félagsins. Þetta félag var einn af þáttak­end­unum í Vafnings­málinu sem Bjarni hefur sagt að hann hafi eingöngu komið að sem umboðs­aðili föður síns og föður­bróður.

„Eigandi félagsins“
„Eigandi félags­ins“ Bjarni Bene­dikts­son er sagður „eig­andi félags­ins“ Haf­silf­urs sem var einn af þátt­tak­end­unum í Vafn­ings­mál­inu þar sem Glitnir tók við tíu millj­arða króna fjár­mögnun á bréfum í bank­anum af banda­ríska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Morgan Stanley. Bjarni kom að þeim við­skiptum per­sónu­lega. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Búinn að redda deiti með Bjarna Ben., hann verður í sambandi við ykkur innan tíðar,“ sagði Guðmundur Ólason, þáverandi forstjóri Milestone, í tölvu­pósti til starfs­manns Glitnis, Guðnýjar Sigurðar­dóttur, daginn sem gengið var frá endur­fjármögnun hluta­bréfa Milestone og fjöl­skyldu Bjarna í Glitni í gegnum félagið Vafning.

Bjarni hefur áður sagt, og hélt því fram fyrir dómi, að aðkoma hans að Vafnings­fléttunni svokölluðu væri engin önnur en að skrifa undir skjöl fyrir hönd ættingja sinna. Gögn sem Stundin hefur undir höndum benda til að þessi lýsing Bjarna á mála­vöxtum sé ónákvæm og að það sem Bjarni hafi lýst sem „þriðja aðila“ sé félag sem hann sjálfur stýrði og Glitnir taldi hann eiga.

Tölvu­pósturinn var sendur þann 8. febrúar árið 2008 en „deitið“ við Bjarna Benediktsson, þingmann og núverandi forsætis­ráðherra, snérist um að Bjarni myndi skrifa undir lánagögn samkvæmt umboði frá föður sínum og föður­bróður sem voru eigendur hluta­bréfanna í gegnum félagið Þátt International ásamt Milestone.

Þetta er einn af tölvu­póstunum sem er að finna í gögnunum innan úr Glitni sem Stundin hefur undir höndum . Á föstu­daginn birti Stundin, ásamt breska blaðinu The Guardian og Reykjavík Media, grein um viðskipti Bjarna Benedikts­sonar með hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 dagana fyrir íslenska efnahags­hrunið árið 2008.

Gögnin eru hins vegar ítarleg og víðfeðm og varpa ljósi á alls kyns annars konar viðskipti sem Bjarni Benediktsson stundaði á árunum fyrir hrunið. Meðal annars aðkomu hans að Vafnings­málinu sem hafði það í för með sér að rúmlega 10 milljarða króna áhætta af hlutabréfa­eign þriðja stærsta hluthafa Glitnis, Þáttar International, var varpað af bandaríska bankanum Morgan Stanley og yfir á Glitni.

  „Hér er um að ræða skýr brot á reglum um lán til tengdra aðila.“

Blekkingar en engin lögbrot 

Félagið Vafningur var notað sem milli­liður í viðskiptunum vegna þess að Glitnir mátti ekki lána fyrirtæki Milestone og Engeyinganna sem átti hluta­bréfin í bankanum beint vegna þess að þá hefðu lán til þeirra farið yfir lögbundin mörk. Eins og sagði um þetta í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis: „Hér er um að ræða skýr brot á reglum um lán til tengdra aðila. Í raun hafði Glitnir í sjón­hendingu afhent um 6,8% eigna sinna og án þess að tilkynna það opinber­lega!““ 

Nokkur sam­skiptiAf gögn­unum frá Glitni að dæma er ljóst að Bjarni Bene­dikts­son átti í nokkrum sam­skiptum við Guðmund Ólason, for­stjóra Milestone, fyrir hrun en vísað er til sam­skipta þeirra að minnsta kosti tví­vegis í gögn­unum.

Bjarni tók því beinan þátt í þessum snúningi sem tveir af starfs­mönnum Glitnis, Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason, voru síðar ákærðir fyrir.

Í dómi héraðs­dóms frá því í desember árið 2012 segir um aðkomu Bjarna að málinu: „Bjarni Benediktsson kvaðst hafa fengið umboð frá eigendum Hrómundar ehf., Hafsilfurs ehf. og BNT hf. til að veðsetja hlutabréf í Vafningi ehf. samkvæmt sérstökum samningi þar um. Stjórnar­menn í þessum félögum hafi verið í útlöndum á þessum tíma og þeir farið þess á leit við Bjarna að hann myndi undirrita veðsamninginn í umboði þessara félaga. Kvaðst Bjarni hafa farið í Glitni banka hf. annað hvort mánudaginn 11. febrúar eða þriðjudag 12. febrúar 2008 og undir­ritað veðsamninginn.“ 

Lárus og Guðmundur voru dæmdir fyrir umboðs­svik vegna málsins í héraðs­dómi og sagði meðal annars þar um háttsemi þeirra - báðir fengu níu mánaða dóma þar af sex skilorðs­bundna: „Með lánveitingunni fóru ákærði, Lárus Welding, sem banka­stjóri, og ákærði, Guðmundur Hjaltason, sem framkvæmda­stjóri fyrirtækja­sviðs Glitnis banka hf., út fyrir heimildir sínar í störfum sínum og skuld­bundu með þeim Glitni banka hf. með ólögmætum hætti. Misnotuðu ákærðu með þessu aðstöðu sína og gerðust þar með sekir um þá háttsemi sem lýst er refsiverð í 249. gr. laga nr. 19/1940.“

Lárus og Guðmundur voru svo sýknaðir í hæstarétti. Um niður­stöðuna sagði meðal annars í dómi hæstaréttar: „Að teknu tilliti til framan­greindra atriða verður niður­staðan sú að ákæru­valdið hafi ekki axlað sönnunar­byrði sína fyrir því að háttsemi ákærðu, sem hér um ræðir, hafi falið í sér verulega fjártjóns­hættu fyrir A banka hf. Samkvæmt því er ekki fullnægt öllum skilyrðum til þess að ákærðu verði gerð refsing samkvæmt 249. gr. almennra hegningar­laga og verða þeir því sýknaðir af kröfum ákæru­valdsins í máli þessu.“

Neitaði að tjá sig

Þáttur International hélt svo á bréfunum í Glitni með fjármögnunni frá Glitni fram að banka­hruninu. Ómögulegt er að segja hvað nákvæmlega hefði gerst ef Glitnir hefði ekki tekið við fjár­mögnun hluta­bréfanna með því að borga Morgan Stanley upp lán félagsins. Líklega hefði þetta hins vegar getað leitt til verðfalls á hluta­bréfum í Glitni þar sem Morgan Stanley hefði eignast þau og líklega ekki fundið neinn kaupanda að þeim. Þetta hefði opinberað sprungurnar í stoðum Glitnis og hefði getað hraðað banka­hruninu. Vafnings­viðskiptin voru því liður í þeirri meintu allsherjar markaðs­misnotkun sem stóru viðskipta­bankarnir þrír stunduðu með eigin hlutabréf á árunum fyrir hrunið 2008.

„Mér finnst raunar mjög óviðeigandi að ég látinn svara spurningum sem eru enginn hluti af þessu dómsmáli.“

Fyrir dómi neitaði Bjarni Benediktsson að tjá sig um hvort hann gæti svarað því hvað hefði gerst ef Glitnir hefði ekki endur­fjármagnað hlutabréf Þáttar International í bankanum. „Ég kom hingað til að bera vitni í þessu máli og við rannsókn þessa máls hef ég greint frá því hver mín aðkoma var og mér finnst raunar mjög óviðeigandi að ég látinn svara spurningum sem eru enginn hluti af þessu dómsmáli. Og þar sem gefið er í skyn að ég búi yfir einhverjum upplýsingum sem máli skipta í þessu dómsmáli.“

Bjarni hefur því aldrei tjáð sig með heild­stæðum hætti um aðkomu sína að Vafnings­máli og hvað vitneskju hann bjó yfir á þeim tíma sem hann kom að þessum viðskiptum.  

Kom að Haf­silfri 2006Tölvu­póst­ur­inn sýnir að Bjarni Bene­dikts­son kom að lána­við­skiptum Haf­silf­urs árið 2006.
Sagður eig­andi félags­ins 2011Í þessum gögnum frá Glitni árið 2011 er Bjarni Bene­dikts­son sagður „eig­andi“ Haf­silf­urs.

 „Málið snýst um Hafsilfur“

Tók þátt í stýra peningum föður síns

Gögnin innan úr Glitni varpa ljósi á það að Bjarni Benediktsson tók virkan þátt í að stýra fjár­festingum föður síns hjá Glitni, meðal annars fjár­festingum eignarhalds­félagsins Hafsilfurs ehf. sem var félag föður hans sem tók þátt í Vafningsviðskiptununum. Fjölmargir tölvu­póstar og gögn sýna fram á þetta. 

Í eftir­farandi tölvu­pósti, sem sendur var í lok júlí 2008, kemur til dæmis fram að Bjarni var að reyna að semja við Glitni um breytingar á fjár­mögnun þessa eignarhalds­félags föður síns. Póstinn sendi Bjarni á frænda sinn Bjarna  Markússon hjá einka­banka­þjónustu Glitnis: „Samkvæmt samtali sendi ég nánari skýringar.  Málið snýst um Hafsilfur.  Erindið er að Hafsilfur fái að losa 417 milljónir af veðsettum peningum og setji í staðinn hlutabréf í Mætti til tryggingar.  Þessir peningar verða notaðir í uppgjör við Milestone í tengslum við gjaldmiðla­skipta­samning sem í gildi er milli Máttar og Milestone. Nú þekki ég ekki nákvæmlega hvað verður síðan um fjár­munina eftir að þeir koma til Milestone en ég tel að þeir komi aftur í bankann til að bæta lausafjár­stöðu þeirra þar eða til greiðslu skulda.  Best er að ræða við Guðmund Ólafsson um þann þátt ef þurfa þykir.  Ég hef skilið hann þannig að þið væruð upplýstir um þann þáttinn en fyrir skemmstu gekk Hrómundur frá samskonar aðgerð þótt þar væri um helmingi hærri fjárhæð að ræða.“ 

Af þessum tölvu­pósti að dæma er alveg ljóst að Bjarni hafði miklar upplýsingar og var beinn þátt­takandi í viðskiptum föður síns, eignarhalds­félags hans Hafsilfurs og Milestone.

Hann segir meðal annars að hann „hafi skilið“ forstjóra Milestone Guðmund Ólason þannig þegar hann ræddi við hann um viðskipti föður síns og Milestone. Þetta er sami Guðmundur Ólason og fékk „deit“ með Bjarna út af undir­ritun lána­skjalanna í Vafnings­málinu. Ljóst er því að Bjarni og Guðmundur Ólason voru í ágætu sambandi á þessum tíma enda lágu sameiginlegir hagsmunir félaga sem þeir tengdust í Þætti International og fjár­festingar­félaginu Mætti ehf. Bjarni sat auk þess um skeið í stjórn Fjár­festingar­félagsins Máttar sem hann vísar til í tölvu­póstinum.

Fjölmargir aðrir slíkir tölvu­póstar eru í gögnunum sem sýna hversu virkur Bjarni var sem fjár­festir fyrir hönd föður síns. 

Í tölvu­pósti í apríl 2008 kom enn frekar fram að lánagögn út af „Hafsilfri (Bjarni Benediktsson)“ ættu ekki að vera send heim til Bjarna sjálfs eða Benedikts Sveins­sonar heldur til Bjarna Markússonar, frænda þeirra sem sá um málefni þeirra beggja í einka­banka­þjónustu Glitnis. Orðrétt sagði í tölvu­pósti frá starfs­manni Glitnis um þetta: „Hafsilfur ehf. (Bjarni Benediktsson) fékk sent heim til sín seðil yfir vanskil á USD lán hjá sér. Hann Bjarni viðskipta­stjóri hans bað mig að ýtreka það að ekkert á að fara til Benedikts, það á allt að fara til Bjarna viðskipta­stjóra hjá 580 sem snertir lánin hans.“

Í öðrum tölvu­pósti frá því í október 2006, tveimur árum fyrir íslenska efnahags­hrunið, er Bjarni spurður af því af Bjarna Markússyni hvort þeir geti hist út af „lánamálum Hafsilfurs“. Faðir Bjarna er ekki einn af viðtak­endum þessa tölvu­pósts. Orðrétt sagði þar: „Hefur þú tök á að hitta okkur Halldór á morgun (ég er laus eftir 10:00)? Hringdu kannski í mig.“ Bjarni var því boðaður á fund til að ræða lánamál félags sem faðir hans var skráður fyrir. 

Þá skiptist hann á tölvu­póstum við Einar Örn Ólafsson, vin sinn og framkvæmda­stjóra fjár­festingar­banka­sviðs Glitnis, undir heitinu „Hafsilfur og Hrómundur“, þar sem Bjarni var að bera fjár­festingar félaganna undir hann. Í maí 2008 skrifaði Bjarni til Einars Arnar: „Ok, Bjarni Mark var eitthvað búinn að skoða þetta held ég. Heyri frá þér, fer til London á morgun í eina eða tvær nætur. B“ 

Einnig tók Hafsilfur ehf. yfir lána­skuld­bindingar Bjarna gagnvart bankanum eins og gögn frá Glitni sýna og þar sem hann er kallaður „eigandi félagsins“. Auk þess sem faðir hans greiddi tugmilljóna króna skuldir Bjarna við bankann, meðal annars rúmlega 220 þúsund dollara lán, ríflega 25 milljónir króna,  á degi neyðar­laganna þann 6. október 2008. Skilin á milli Bjarna Benedikts­sonar og Hafsilfurs ehf., annars stærsta hluthafa N1 og stórs óbeins hluthafa í Glitni, og Benedikts Sveins­sonar voru því afar óljós miðað við gögnin.  

Hlut­að­ist til um end­ur­fjár­mögnunBjarni hlut­að­ist til um end­ur­fjár­mögnun um sumar 2008, tveimur mán­uðum fyrir íslenska banka­hrunið.

  „Mín aðkoma að þessu máli var eingöngu takmörkuð við það að mæta fyrir hönd þessara hluthafa til að skrifa undir veðskjölin“

Ónákvæmt orðalag Bjarna

Þessar upplýsingar um aðkomu Bjarna Benedikts­sonar að rekstri og stýringu eigna Hafsilfurs, og þar með beina aðkomu að Vafnings­málinu, þar sem Hafsilfur var einn af hluthöfum Vafnings, segja aðra sögu en Bjarni hefur sjálfur sagt um aðkomu sína að þessu máli. 

Í viðtali eftir að hann bar vitni í Vafnings­málinu fyrir dómi árið 2012 sagði Bjarni: „Mín aðkoma að þessu máli var eingöngu takmörkuð við það að mæta fyrir hönd þessara hluthafa til að skrifa undir veðskjölin. Það þýðir að ég var í engum samskiptum við bankann á nokkrum tíma, átti aldrei aðkomu að þeim lána­samningum sem hér liggja til grund­vallar, hafði engar upplýsingumar um þær eignir sem fóru inn í þessi félög eða nokkuð af því tagi.“

Hann sagði líka: „Ég var í engum samskiptum við bankann á nokkrum tíma, átti aldrei aðkomu að þeim lána­samningum sem hér liggja til grund­vallar, hafði engar upplýsingar um þær eignir sem fóru inn í þessi félög eða nokkuð af því tagi.“ 

Í yfir­lýsingu sem Bjarni sendi frá sér um Vafnings­viðskiptin árið 2012 lýsti hann aðkomu sinni sömuleiðis þannig að um hefði verið að ræða undir­skrift hans samkvæmt umboði frá „þriðja aðila“, föður sínum og frænda. Orðrétt sagði Bjarni: „Í tilefni af fréttum um dagsetningar skjala í svonefndu Vafnings­máli vill undir­ritaður taka eftir­farandi fram. Í vitna­skýrslu, sem tekin var tæpum fjórum árum eftir undir­ritun, greindi ég frá því að ég hefði að öllum líkindum skrifað undir skjölin, fyrir hönd þriðju aðila, á bilinu 8. -12. febrúar 2008.   Samkvæmt gögnum sem ég hef í milli­tíðinni aflað mér má ætla að ég hafi skrifað undir 11. eða 12. febrúar.“  

Skráður eig­andi félags­insBene­dikts Sveins­son var skráður eig­andi Haf­silf­urs en Bjarni Bene­dikts­son stýrði félag­inu að ein­hverju leyti og var sagður eig­andi þess í sam­skiptum um félagið.

Bjarni stýrði fjárfestingum „þriðja aðila“ í Vafningsmálinu

Miðað við gögnin þá tók Bjarni sjálfur þátt í stýra fjár­festingum þessa „þriðja aðila“ sem hann vísar til. Auk þess skrifaði Bjarni sjálfur, án umboðs, fyrir hönd eins af aðilunum sem kom að lána­viðskiptunum, BNT ehf., móður­félags N1. Þetta gat Bjarni gert sem stjórnar­formaður félagsins. Þá bendir tölvu­póstur Guðmundur Ólasonar hjá Milestone til starfs­manns Glitnis að Bjarni hafi sannarlega verið í „samskiptum við bankann“ á einhverjum tíma enda segir Guðmundur að Bjarni muni hafa „samband“ við bankann út af Vafnings­málinu.

Bjarni Benediktsson kom því að undir­skriftunum og ákvörðunum um lántökur félaga fjöl­skyldu sinnar sem stjórnar­formaður eins félagsins, sonur eiganda annars félags sem gögnin sýna að hann stýrði að hluta til auk þess sem hann fékk umboð frá félagi föður­bróður síns, Hrómundar ehf., sem hann stýrði sannarlega ekki sjálfur.

Einhver tók þá ákvörðun fyrir hönd Hafsilfurs ehf. að vera með í Vafnings­viðskiptunum til að endur­fjármagna hluta­bréfin í gegnum Glitni og greiða upp lánið við Morgan Stanley upp á 10 milljarða króna. Miðað við gögnin frá Glitni var Bjarni virkur í að stýra eignum, lánum og fjár­festingum þessa félags föður síns. Enginn neyddi Hafsilfur ehf. til að taka þátt í viðskiptum með hluta­bréfin í Glitni sem fólu í sér að farið var framhjá reglum um hámarks­lánveitingar til tengdra aðila. Hver tók þessa ákvörðun fyrir hönd Hafsilfurs sem Glitnir sagði ítrekað í tölu­póst­samskiptum að Bjarni ætti? Engin tölvugögn er að finna um samskipti Benedikts Sveins­sonar, föður Bjarna, við bankann á þessum tíma sem gögnin ná yfir.

 Auk þessa má spyrja þeirra spurninga hver hafi raun­verulega selt hlutabréf Hafsilfurs í Glitni um miðjan febrúar árið 2008 fyrir um 850 milljónir króna. Var það Benedikt sjálfur eða Bjarni Benediktsson? Nokkrum dögum áður hafði Bjarni Benediktsson verið þátt­takandi í Vafningfléttunni og vissi því sem var að á þessum tíma vildi Morgan Stanley ekki lengur fjármagna bréf fjöl­skyldunnar og Milestone í Glitni og að enginn annar banki vildi það heldur. Hann hafði því upplýsingar um að staða bankans hefði veikst umtals­vert fyrir vikið þar sem fjár­mögnun þriðja stærsta hluthafa bankans var nú kominn yfir á hann sjálfan. Bjarni fundaði líka með banka­stjóra Glitnis sem þingmaður í febrúar 2008, á grund­velli þess að ríkis­stjórnin kæmi að „lausn vanda bankanna“, og hóf síðan að selja sín persónu­legu hlutabréf í Glitni tveimur dögum síðar. Fram að banka­hruni vildi hann eiga í „reglulegu sambandi“ við hann. 

Stundin gerði ítrekaðar tilraunir til að ná viðtali við Bjarna Benediktsson um málið í gegnum aðstoðar­mann hans Svanhildi Hólm Vals­dóttur. Hún svaraði hins vegar ekki tölvu­póstum Stundarinnar þar sem beiðnirnar voru bornar fram. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár