Friðsömum mótmælendum vísað af þingpöllum

Héldu á borða þar sem þing­heimur var hvattur til að virða barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Friðsömum mótmælendum vísað af þingpöllum

Mót­mæl­endur sem hvöttu þing­heim til að virða barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna voru beðnir um að yfir­gefa þing­palla meðan Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hélt stefnu­ræðu sína á Alþingi í kvöld. „Borðinn var hirtur, við vorum rekin út og nöfnin okkar skráð niður,“ segir einn þeirra sem stóðu að mót­mæl­unum í sam­tali við Stundina.

Aðgerðin var skipu­lögð af Ungum jafn­að­ar­mönnum, ung­liða­hreyf­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar og sneri að málum sem verið hafa í umræð­unni und­an­farna daga, brott­vísun hæl­is­leit­end­anna Hanyie og Mary og fjöl­skyldna þeirra. Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar ætlar leggja fram frum­varp á morgun þess efnis að stúlk­urnar og fjöl­skyldur þeirra fái rík­is­borg­ara­rétt.

Í til­kynn­ingu Ungra jafn­að­ar­manna sem send var fjöl­miðlum í kvöld er bent á að aldrei í sögu mann­kyns hafi fleiri börn verið á flótta en nú. „Það er með öllu óásætt­an­legt að íslensk stjórn­völd beri fyrir sig val­kvæða heim­ild í Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og vísi börnum, sem hingað leita skjóls og verndar, aftur út í óvissu og örygg­is­leysi. Það er sið­ferð­is­leg skylda okkar að taka utan um börn á flótta og veita þeim skjól,“ segir þar. Er þess kraf­ist að stjórn­völd stöðvi þegar í stað brott­vís­anir á börnum sem koma frá átaka­svæðum og sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Þá er kallað eftir því að útlend­inga­lög og fram­kvæmd þeirra verði tekin til heild­stæðrar end­ur­skoð­unar og fólki verði auð­veldað að setj­ast hér að, hvort sem um ræðir veit­ingu atvinnu­leyfa, alþjóð­legrar verndar eða rík­is­borg­ara­réttar.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, birtir stöðu­upp­færslu á Facebook um mót­mælin. „Lög­reglan var rétt í þessu að vísa frið­sælum og þöglum mót­mæl­endum á brott af áhorf­enda­palli þings­ins fyrir að halda á lofti skila­boðum um sð virða barna­sátt­mál­ann,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár