Verðbólga mælist 5,9 prósent – hærri virðisaukaskattur á eldsneyti vegur þungt

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,39 pró­sent í sept­em­ber. Hag­stofan metur að hækkun virð­is­auka­skatts á bensín og dísel hafi ein og sér hækkað vísi­töl­una um 0,32 pró­sentu­stig. Lækkun flug­far­gjalda vó á móti.

Verðbólga mælist 5,9 prósent – hærri virðisaukaskattur á eldsneyti vegur þungt
Hækkun Tíma­bundin lækkun virð­is­auka­skatts á elds­neyti gekk til baka í byrjun sept­em­ber. Hag­stofan segir þó bensín og dísel hafi hækkað óháð þeirri breyt­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verð­bólga mælist nú 5,9 pró­sent, sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,39 pró­sent milli ágúst og sept­em­ber. Án hús­næðis hækk­aði vísi­talan um 0,40 pró­sent milli mán­aða og hefur hækkað um 5,7 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði.

Verð­bólga hefur ekki mælst hærri síðan í ágúst árið 2024, fyrir meira en tveimur árum síðan.

Verð á bens­íni hækk­aði um 16,1 pró­sent í sept­em­ber og verð á dísel um 18,1 pró­sent. Hækk­an­irnar höfðu sam­an­lagt 0,43 pró­sentu­stiga áhrif til hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs.

Tíma­bundin lækkun virð­is­auka­skatts á bensín og dísel rann út 1. sept­em­ber og fór skatt­ur­inn þá úr 11 í 24 pró­sent. Hag­stofan metur það sem svo að sú breyt­ing ein og sér hafi hækkað vísi­tölu neyslu­verðs um 0,32 pró­sentu­stig. Elds­neyti hefði þó hækkað í verði án skatt­breyt­ing­ar­innar, sam­kvæmt útreikn­ingum stofn­un­ar­innar.

Á móti elds­neyt­is­hækk­un­unum lækk­uðu flug­far­gjöld til útlanda um 11,7 pró­sent. Sú lækkun dró vísi­töl­una niður um …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár