Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti brydd­aði upp á því í sím­tali við Bjarna Bene­dikts­son, þá­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í nóv­em­ber 2024 hvort Ís­land ætti að verða 51. ríki Banda­ríkj­anna.

Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna

Donald Trump Bandaríkjaforseti bryddaði upp á því í símtali við Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvember 2024 hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna. RÚV greinir frá þessu í dag. Heimildin hefur rætt við einstakling innan stjórnkerfisins sem staðfestir efni símtalsins.

Símtalið átti sér stað 26. nóvember 2024, fjórum dögum fyrir alþingiskosningar. Trump hafði þá skömmu áður verið kjörinn forseti Bandaríkjanna á ný en hafði ekki tekið við embætti.

RÚV hefur eftir nokkrum heimildarmönnum, sem séð hafa minnisblað um samtalið, að Trump hafi snemma í símtalinu rætt áhuga vina og vandamanna sinna á Íslandi. Hann hafi síðan sagt, í gamansömum tón, að stundum hefði verið rætt um að Ísland yrði 51. ríki Bandaríkjanna.

Bjarni hafi gefið lítið fyrir hugmyndina og tekið henni sem léttu gríni. Trump hafi hins vegar gripið fram í og hvatt Bjarna til að hugsa málið vel að loknum kosningasigri, samkvæmt frásögn RÚV.

Símtalið fór ekki fram eftir hefðbundnum opinberum boðleiðum og hvorki er til upptaka né formlegt endurrit af því. Alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins hlustaði hins vegar á samtalið og skrifaði minnispunkta, samkvæmt upplýsingum bæði RÚV og Heimildarinnar.

Í opinberri tilkynningu forsætisráðuneytisins daginn eftir símtalið var ekki minnst á ummæli Trumps um Ísland sem mögulegt ríki Bandaríkjanna. Þar sagði þess í stað að Trump hefði sýnt Íslandi mikinn áhuga, meðal annars sem ferðamannastað, og verið áhugasamur um sögu og menningu þjóðarinnar.

RÚV óskaði eftir minnisblaðinu frá forsætis- og utanríkisráðuneytunum en afhendingu þess var hafnað. Utanríkisráðuneytið sagði birtingu þess geta skaðað trúnaðarsamband Íslands við erlent ríki og þar með hagsmuni íslenska ríkisins.

Frásögnin kemur fram nokkrum dögum eftir að Trump birti mynd á samfélagsmiðli sínum þar sem meðal annars Ísland og Grænland voru sýnd undir bandaríska fánanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi á fund í kjölfarið og sagði færsluna óviðeigandi.

Trump hefur áður viðrað hugmyndir um yfirráð Bandaríkjanna yfir öðrum landsvæðum. Hann hefur ítrekað rætt um Grænland og einnig sagt að Kanada gæti orðið 51. ríki Bandaríkjanna. Hann hefur birt kort af löndunum þar sem þau eru þakin bandaríska fánanum. Það sama hefur hann gert með Venesúela, en í ársbyrjun lét Trump ráðast inn í landið og ræna forseta landsins, í því skyni meðal annars að ná forræði yfir olíuauðlindum landsins.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þeir Bjarni og Donald eru dæmi um menn sem hafa unnið of mörg skallaeinvígi.
    1
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Af hverju ætli Bjarni hafi logið um símtalið. Ætli geti verið að hann hafi eitthvað óhreint í pokahorninu?
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ég hefði svarað í sömu mynt og upplýst hann um að þar sem Ísland er ekki í Ameríku þá þyrfti hann að breyta nafninu á sameinuðu landi í Bandaríki Norður-Ameríku og ÍSLANDS! :D
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
4
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu