Í um eina mínútu hvarf sólin á bak við tunglið og myrkrið lagðist yfir landið.
„Fólk þagnaði, við vorum einhvern veginn öll sameinuð undir skugga tunglsins, undir tunglnóttinni. Og það er bara gullfallegt.“
Sævar Helgi Bragason komst svo að orði þegar hann lýsti almyrkva á Íslandi. Hann sagðist hafa átt erfitt með að halda aftur af tárunum þegar þetta einstaka náttúruundur blasti við Íslendingum.
„Á okkar tímum er erfitt að sameina okkur en ef eitthvað sameinar okkur þá er það það sem er fyrir ofan okkur,“ hélt Sævar Helgi áfram.
Á meðan fólkið niðri á jörðu þagnaði barst þyrlusláttur af himni ofan.
Allt þyrluflug fyrir almyrkvann var löngu upppantað og sölumenn höfðu ekki undan við að svara auðmönnum sem reyndu að yfirbjóða þá sem áttu þegar bókaðar ferðir.
Reykjavíkurflugvöllur fylltist af einkaþotum og firðirnir af snekkjum auðmanna.
Hitinn í Evrópu
Á einni og hálfri klukkustund valda ríkustu menn heims …























































Athugasemdir