Eitt öflugasta vopn barnanna heitir SPEGILL. Það virkar þannig að ef einhver kallar þig til dæmis heimskan segirðu „spegill“ og þá er viðkomandi orðinn heimskur, ekki þú. Mjög sniðugt.
En ég ætlaði ekki að fjalla um spegla heldur peningana sem við erum öll með á heilanum. Sem ákvarða lífsgæði okkar og hamingju en við ræðum mjög lítið um hvernig þeim er skipt og hvers vegna.
Á plánetunni er fólk sem á brjálæðislegt magn af peningum. Spámenn sem heimsækja jörðina vara allir sérstaklega við auðsöfnun. Hvers vegna ætli það sé?
Tökum Jesúm frá Nasaret sem dæmi. Hann var mikill prakkari sem ferðaðist um á sandölum og stundum á asnabaki. Rústaði sölubásum í musteri því honum fannst þeir svo púkalegir og sagði líka auðveldara fyrir kameldýr að troðast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að fara til himna. Frekar skýrt. Kameldýr eru stór og nálaraugu lítil.
„Kannski var hann að tala um sjúklega lítið kameldýr og geggjað stórt nálarauga?
En peningafíklar hrista hausinn. Segja að Jesús hafi annaðhvort ruglast svakalega eða meint eitthvað annað. „Kannski var hann að tala um sjúklega lítið kameldýr og geggjað stórt nálarauga?“
Gagnrýni á auðsöfnun virðist nefnilega alltaf særa fram ákveðinn hóp fólks sem algjörlega dýrkar milljarðamæringa. Tilbiður þá. Alveg halelú. Þau öskra SPEGILL, nema þeirra spegill heitir ÖFUND.
„Auðsöfnun veldur misskiptingu,“ segja sumir.
„Alltaf sama öfundin,“ svara klappstýrurnar.
„Örfá fyrirtæki valda nánast allri mengun í heiminum á meðan sauðsvartur almúginn endurvinnur pappastrá og rífur smjördollur í sundur til þess að forða okkur frá heimsenda,“ segir fólk.
„Baknagandi kommadjöfull sem vill að allir fái 8 á prófum,“ segja klappstýrurnar.
Ég hvet því klappstýrurnar til að hlusta áður en kommadjöflarnir brjóta speglana og nota brotin sem vopn. Því þótt „spegill“ sé frábær tækni verður hún mjög fljótt bitlaus og í stéttastríðinu sem nálgast óðfluga vilt þú ekki halda á bitlausu vopni að verja milljarðamæringa sem er skítsama um þig.
























































Athugasemdir