Myrkur í ágúst 18 — Eldklerkurinn sér almyrkva

Jón Stein­gríms­son eld­klerk­ur lýsti al­myrkva á sólu 17

Myrkur í ágúst 18 — Eldklerkurinn sér almyrkva
Þarna blandar gervigreindin öllu saman, Skaftáreldum, sólmyrkvanu löngu fyrr og eldmessunni, auk hinnar framandlegu kirkju.

Þá er runninn upp stóri dagurinn, dagur sólmyrkvans.

Greinin frá í gær er hérna, en lítum nú lengra aftur í tímann.

Sumarið 1783 hófst sá atburður á Íslandi sem afdrifaríkastur hefur orðið fyrir fólk í öðrum löndum. Á hvítasunnudag 6. júní hófst eldgos á hálendinu norður af hinni svonefndu Síðusveit á suðausturhluta lands.

Gífurlegt magn hrauns og ösku vall þar úr mörgum sprungum mánuðum saman. Hraunin rann niður í byggðina og eyðilagði fjölda bændabýla svo hundruð manna flúðu í aðra landshluta. Prestur sveitarinnar, Jón Steingrímsson, skrifaði magnþrungna og dramatíska lýsingu á eldgosinu og afleiðingum þess.

Eldmóður eldklerksins

Þessi heimild er einstæð í sinni röð í heiminum. Jón lýsir gangi gossins á raunsannan hátt en frægasti kafli lýsingarinnar er þó þegar hann lýsir messu sem hann hélt í kirkjunni á Kirkjubæjarklaustri sem menn óttuðust að yrði brátt fyrir hinum ógnvænlega hraunstraumi. Meðan Jón og sóknarbörn báðu guð miskunnar inni í reykfylltri kirkjunni sneri hraunstraumurinn af leið sinni og braut sér aðra leið. Jón var ekki seinn á sér að gefa í skyn að trúareldmóður hans og sóknarbarnanna hefðu orðið til þess að milda guð, sem þó hefði hleypt eldgosinu af stað, og því hefði guð hlíft kirkjunni.

Og var Jón gjarnan síðan nefndur Eldklerkurinn.

Harðindin stóðu í tvö þrjú ár

En hafi guð átt þar hlut að máli hlífði hann sveitarmönnum og þeim sem bjuggu í nágrannasveitunum þó ekki lengi. Í kjölfar eldgossins og þeirrar eitruðu ösku sem féll um stóran hluta Íslands varð uppskerubrestur, búpeningur dó og sóttir brutust út. Íbúar Íslands höfðu verið um 40.000 en einn fjórði hluti þeirra dó í þeim „móðuharðindum“ sem kennd voru við öskumóðuna í loftinu. Harðindin stóðu í tvö þrjú ár og Íslendingar hafa sennilega aldrei verið færri frá landnámi en eftir að þeim lauk. 

Milljónir létu lífið

En ekki nóg með það. Gosefni frá Skaftáreldum, en svo er gosið yfirleitt nefnt hér á landi, ruku upp í háloftin og dreifðust um stóran hluta norðurhvels jarðar. Óyggjandi vísindalegar niðurstöður hafa sýnt fram á að þessi gosefni ollu kólnun andrúmslofts víða um heim sem síðan leiddi af sér harðindi og hungursneyðir allt frá Norður-Ameríku til Japans, og frá Egyptalandi til Indlands.

Það mun vera staðreynd að milljónir manna hafi dáið í þessum harðindum sem eldgosið á Íslandi átti ríkastan þátt í að hleypa af stað.

„Lengi varð dimmt sem nótt væri komin“

Því hefur meira að segja verið haldið fram að gosið í Lakagígum hafi haldið þeim harðindum og erfiðleikum í Frakklandi sem ollu því að óánægja almennings sauð upp úr 1789 og franska byltingin braust út.

En það er reyndar ærið vafasamt.

Athyglisvert er að í sjálfsævisögu séra Jóns Steingrímssonar, sem er ekki síður merkilegt rit en lýsingar hans af eldgosinu 1783, lýsir hann almyrkva á sólu sem varð þegar hann var aðeins fjögurra ára. Þá „formyrkvaðist sólin svo um nónbilið að lengi varð dimmt sem nótt væri komin“. Þetta átti sér stað norðanlands 17. maí 1733.

Eftir almyrkvann sem Jón eldklerkur varð vitni að varð hvergi almyrkvi á sólu á Íslandi fyrr en 100 árum seinna. 

„Þá formyrkvaðist sólin“

Listi yfir almyrkva

Eftirfarandi listi um almyrkva er fenginn af vefsíðu Almanaks Háskóla Íslands (sjá hérna) en hann er líka að finna, ásamt margvíslegum öðrum fróðleik á sérstakri sólmyrkvasíðu Sævars Helga Bragsonar:

849  25. maí.
Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík, Akureyri, Grímsey, Reykjahlíð, Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Norðfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Djúpivogur.

878  29. október.
Ólafsvík, Grindavík, Keflavík.

1077  25. febrúar. 
Patreksfjörður, Bolungarvík.

1131  30. mars. 
Stykkishólmur, Ólafsvík, Patreksfjörður, Ísafjörður, Bolungarvík Hólmavík.

1312  5. júlí. 
Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Vestmannaeyjar.

1330  16. júlí.
Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn, Grindavík, Keflavík.

1339  7. júlí.
Hvalfjarðarmynni - Hestfjall - Mýrdalsjökull - Meðallandssandur.

1424  26. júní.
Vestmannaeyjar.

1433  17. júní.
Reykjavík, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöllur, Selfoss, Þorlákshöfn, Grindavík, Keflavík.

1469  9. júlí.
Hveravellir, Akureyri, Reykjahlíð, Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Norðfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Djúpivogur, Höfn, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöllur, Skálholt, Selfoss, Þorlákshöfn.

1733  13. maí.
Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík, Grímsey, Reykjahlíð, Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Norðfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður.

1833  17. júlí.
Hveravellir, Reykjahlíð, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Norðfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Djúpivogur, Höfn, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöllur, Skálholt, Selfoss, Þorlákshöfn.

1851  28. júlí.
Grímsey, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður.

1954  30. júní.
Vík, Vestmannaeyjar.

2026  12. ágúst.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
5
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
6
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár