Farskólinn á Sauðárkróki er miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. Þar er boðið upp á ýmis námskeið er kemur að matarhandverki með það markmið að auka verðmætasköpun fyrir bændur. Viðtökurnar hafa verið góðar og segir framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar að mikil gróska sé í matvælagerð á svæðinu.
Halldór B. Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri Farskólans og segir hann að bakgrunnur hans hafi leitt hann út í þessa starfsemi. „Það var árið 2011 sem ég byrjaði í þessum bransa. Á þeim tíma voru tveir hópar sem símenntunarmiðstöðvar landsins hafi átt erfitt með að ná til. Það voru annars vegar sjómenn og hins vegar bændur.

Ég bý í sveit og er kominn af bændum og ég tók það til mín og fannst að ég gæti gert eitthvað í þessu. Ég byrjaði hægt og rólega með námskeið og …





















































Athugasemdir