Starmer biðst afsökunar vegna nauðungarættleiðinga: „Skömmin er okkar“

Tal­ið er að um 185 þús­und börn hafi ver­ið tek­in frá mæðr­um sín­um á fimmta, sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu ald­ar.

Starmer biðst afsökunar vegna nauðungarættleiðinga: „Skömmin er okkar“

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, hefur beðist formlegrar afsökunar fyrir hönd breska ríkisins vegna hlutverks stjórnvalda í svokölluðum nauðungarættleiðingum á Englandi og í Wales á árunum eftir síðari heimsstyrjöld.

Í umfjöllun BBC um málið kemur fram að um 185 þúsund börn hafi verið tekin frá mæðrum sínum á fimmta, sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Þúsundir kvenna voru þá beittar þrýstingi til að láta börn sín af hendi til ættleiðingar vegna þess að þær voru ógiftar og urðu fyrir miklum félagslegum fordómum.

Í yfirlýsingu á breska þinginu sagði Starmer að það sem hefði komið fyrir „tugi þúsunda mæðra, barna og fjölskyldna“ væri „blettur á sögu okkar“.

„Skömmin er ekki ykkar. Hún var aldrei ykkar. Skömmin er okkar,“ sagði forsætisráðherrann.

Áralöng barátta að baki afsökunarbeiðninni

Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar margra ára baráttu mæðra, ættleiddra barna og fjölskyldna þeirra fyrir opinberri viðurkenningu á því sem átti sér stað. Fyrir yfirlýsingu Starmers áttu …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu