Smábarn deyr eftir að því var bjargað úr heitum bíl

Í hita­bylgj­unni í Frakk­landi fannst smá­barn með­vit­und­ar­laust í heitum bíl og var flutt á sjúkra­hús, þar sem það lét lífið. Fleiri börn hafa látið lífið með sama hætti á síð­ustu dögum í ban­vænni hita­bylgju sem skellur á Evrópu.

Smábarn deyr eftir að því var bjargað úr heitum bíl
Kælir sig niður Barn tekst á við hita­bylgj­una með því að leika sér í gos­brunni. Mynd: AFP

Annað barn lætur lífið í hita­bylgj­unni í Frakk­landi. Smábarn fannst í heitum bíl í Marseille og var flutt á sjúkra­hús þar sem það lét lífið, sam­kvæmt yfir­völdum í Frakk­landi. 

Almanna­varnir greindu frá því í dag að 18 mán­aða gam­alt barn hefði verið flutt á barna­spít­ala eftir að það fannst í bíl á bíla­stæði háskóla­sjúkra­húss­ins La Timone á þriðju­dag. Barnið var þá í lífs­hættu­legu ástandi vegna ofhitn­unar, sem verður þegar lík­ams­hiti hækkar veru­lega yfir eðli­leg mörk.

Fleiri börn látið lífið

Áður hafði þriggja ára drengur látið lífið eftir að það lok­að­ist inni í heitum bíl í bænum Saint-Gratioen. For­eldrar hans töldu að dreng­ur­inn væri að leggja sig þar til þeir fundu hann með­vit­und­ar­lausan í bílnum, þar sem hann virð­ist hafa lok­ast inni með barna­læs­ingu. End­ur­lífg­un­ar­til­raunir for­eldra og síðar slökkvi­liðs báru ekki árangur. 

Enn fyrr fund­ust lík tveggja barna, tveggja og fjög­urra ára, í bíl fjöl­skyldu þeirra á bíla­stæði í íbúð­ar­hverfi í bænum Carpentras í suð­ur­hluta lands­ins. 

Fjöldi ungs fólks drukknað

Þá hafa að minnsta kosti 55 drukknað við að reyna að kæla sig niður í ám og vötnum, mest allt ungt fólk. Enn er ótt­ast að fjöldi lát­inna muni aukast áður en yfir líkur. 

Hitamet hafa verið slegin í Frakk­landi í vik­unni, sem og víðar í Evrópu. Talið er að um 150 millj­ónir manns í álf­unni þurfi að þola hita sem fer yfir 35°C í dag Enn fleiri, eða um 420 millj­ónir, þurfa að þola hita sem fer yfir 30°C. 

Hita­bylgjan Myndir sem teknar voru með gervi­tungli af hita­bylgj­unni í Evrópu.

Með­fylgj­andi mynd var tekin af hita­stigi yfir­borðs jarðar af Copernicus Sentinel-3 gervi­tungl­inu mið­viku­dag­inn 23. júní. Gögnin voru tekin síðla morg­uns að stað­ar­tíma.

Litirnir á mynd­inni ná frá fjólu­bláum og dökk­rauðum litum (sem sýna yfir­borðs­hita allt að 55°C, meðal ann­ars á svæðum í mið­hluta Spánar, vest­ur­hluta Frakk­lands og Norður-Afríku) yfir í ljós­bláa liti sem tákna lægra hita­stig á fjalla­svæðum. Svæði sem voru hulin skýjum eru sýnd með hvítum lit. 

Tölurnar vísa til yfir­borðs­hita, það er að segja hita á jörðu, mal­biki, sandi og svo fram­vegis, en ekki loft­hita. Þegar fjallað er um það í fréttum að loft­hit­inn sé 38°C getur yfir­borðs­hit­inn á mal­biki eða beru landi auð­veld­lega farið yfir 50°C.

Yfirborðshiti mældist hærri

Þannig mældi gervi­tunglið yfir­borðs­hita upp á 48°C í Madríd, 44°C í Róm og 46°C í bæði Poitiers í Frakk­landi og Zaragoza á Spáni. Í Norður-Afríku mæld­ist enn meiri hiti á yfir­borði jarðar; í Túnis náði hann 49°C.

Þar sem yfir­borð eins og klettar, sandur og mal­bik safna í sig hita og halda honum, er hita­stig á jörðu oft mun hærra en loft­hit­inn sem mældur er í skugga.

Sentinel-3 ber fjögur mæli­tæki, þar á meðal afar nákvæmt hita­mæli­tæki sem mælir hita­stig bæði á landi og hafi. Það greinir hita­streitu á landi og gögn þess eru meðal ann­ars notuð í land­bún­aði, til að fylgj­ast með hita­hverfa­á­hrifum í borgum og til að vakta skóg­ar­elda.

Núver­andi hita­bylgja í Evrópu stafar af veð­ur­fræði­legu mynstri þar sem þrá­látur háþrýst­ingur myndar svo­kall­aða hita­hvelf­ingu. Háþrýsti­svæðið situr fast yfir Evrópu á milli lág­þrýsti­svæða sitt hvoru megin.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár