Uppsagnir í ráðhúsinu: Skrifstofa upplýsingafulltrúa lögð niður

Borg­in til­kynnti starfs­fólki í morg­un að skrif­stofa sam­skipta og við­burða yrði lögð nið­ur. Upp­lýs­inga­full­trú­um hef­ur ver­ið sagt upp.

Uppsagnir í ráðhúsinu: Skrifstofa upplýsingafulltrúa lögð niður
Ráðhús Reykjavíkur Allnokkrum hefur verið sagt upp í ráðhúsinu. Mynd: Golli

Nýr meirihluti hefur lagt niður skrifstofu samskipta og viðburða vegna hagræðingaraðgerða og skipulagsbreytinga. Hátt í tíu starfsmönnum að minnsta kosti hefur verið sagt upp hjá sviðinu, þó aðeins upplýsingafulltrúum, samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar. Viðburðasviðið verður fært annað í umræddum skipulagsbreytingum.

Þá vekur athygli að borgin óskar ekki eftir vinnuframlagi þeirra sem hefur verið sagt upp frá og með næstu mánaðamótum.

Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar fengu starfsmenn póst í morgun þar sem óskað var eftir samtali við þá. Starfsfólkið fór þá eitt í einu á fund með Þorsteini Gunnarssyni borgarritara sem tilkynnti uppsagnirnar.

Ekki er ljóst hversu mörgum var sagt upp en fjöldi upplýsingafulltrúa hjá borginni hefur oft verið pólitískt bitbein hjá kjörnum fulltrúum. Árið 2023 störfuðu átta upplýsingafulltrúar hjá upplýsingadeild Ráðhússins en aðrir níu sem skiptust á sjö svið borgarinnar, eða sautján í heildina. Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Marta Guðjónsdóttir, lagði meðal annars fram þá tillögu árið 2023 að skrifstofa samskiptateymis yrði lögð …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Mikið var að bundinn sé endir á þessa kostnaðarsömu vitleysu. Ég hef samúð með þeim sem missa "vinnuna" og óska þeim alls hins besta í atvinnuleit sem ég tengi ágætlega við.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár