„Árásarhundur“ Trumps settur yfir bandarísku leyniþjónustuna

Nýr yf­ir­mað­ur leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna er reynslu­lít­ill á svið­inu, en hef­ur vak­ið at­hygli fyr­ir árás­ir á demó­krata.

„Árásarhundur“ Trumps settur yfir bandarísku leyniþjónustuna
Bandamaður Trumps Bill Pulte hefur verið settur yfir leyniþjónustuna eftir umdeildar árásir gegn pólitískum andstæðingum Bandaríkjaforseta. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði í dag hliðhollan bandamann sinn, án nokkurrar reynslu af þjóðaröryggismálum, yfirmann leyniþjónustu Bandaríkjanna – og sagði að hann myndi einnig halda áfram í núverandi störfum sínum við að hafa umsjón með húsnæðis- og húsnæðislánastefnu alríkisins.

Bill Pulte, yfirmaður Húsnæðisfjármögnunarstofnunar alríkisins (Federal Housing Finance Agency), sem er þekktur fyrir að ráðast opinberlega á pólitíska andstæðinga Trumps, var útnefndur starfandi yfirmaður leyniþjónustumála (DNI) og tekur við af Tulsi Gabbard.

Gabbard, sem sjálf var umdeild í starfi, sagði af sér seint í maí og lauk þar með starfstíma þar sem hún virtist vera á öndverðum meiði við Trump vegna stríðs hans gegn Íran.

Leyniþjónustusamfélag bandaríska alríkisins heyrir undir yfirmann leyniþjónustumála og er hann um leið aðalráðgjafi forsetans í málaflokknum. Hann þarf samkvæmt lögum að hafa „víðtæka sérfræðiþekkingu á þjóðaröryggismálum“, sem Pulte skortir.

Trump hrósaði Pulte í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann tilkynnti um skipunina og sagði að hann „hefði mikla reynslu af því að stjórna viðkvæmustu málum Bandaríkjanna, öryggi og heilbrigði markaðanna“.

Forsetinn bætti við að Pulte, sem einnig stýrir húsnæðislánarisunum Fannie Mae og Freddie Mac, muni halda áfram að gegna störfum sínum tengdum húsnæðismálum.

Pulte, sem er 38 ára, hefur verið lýst af sumum bandarískum fjölmiðlum sem „árásarhundi“ forsetans.

Pulte hefur sakað öldungadeildarþingmann demókrata, Adam Schiff, og dómsmálaráðherra New York, Letitiu James, um að falsa skjöl vegna húsnæðislánaumsókna.

The Wall Street Journal greindi frá því að samkvæmt innri kvörtun hjá Fannie Mae hafi Pulte ólöglega nálgast húsnæðislánaskrár James og annarra embættismanna demókrata.

Kviðdómur alríkisins ákærði Letitiu James í október en málinu var vísað frá, þó með möguleika á að leggja það fram aftur.

Óttast pólitískar ofsóknir

Pulte hefur einnig barist fyrir svikamáli tengdu húsnæðislánum gegn Lisu Cook, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, en á grundvelli þess reyndi Trump að reka hana. Það mál bíður meðferðar Hæstaréttar.

Pulte, sem er erfingi byggingarfyrirtækis, hefur valdið klofningi meðal margra, jafnvel innan innsta hrings Trumps, með ágengum og opinberum pólitískum aðgerðum sínum.

Bandarískir þingmenn demókrata gagnrýndu skort Pulte á reynslu og sögu hans um að beina spjótum sínum að andstæðingum Trumps.

Mark Warner, varaformaður leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar, sagði að Pulte virðist hafa verið valinn „vegna þess að Hvíta húsið telur að hann muni skila þeirri frásögn sem það vill, en ekki þeim upplýsingum sem við þurfum“.

„Forsetinn hefur valið embættismann sem hefur sýnt ekki aðeins vilja heldur ákafa til að beita valdi stjórnvalda til að stunda pólitískar hefndaraðgerðir,“ sagði Warner í yfirlýsingu.

Og leiðtogi demókrata, Chuck Schumer, sagði í ræðustól öldungadeildarinnar að einhverjum sem myndi leggja fram „tilefnislausar, pólitískar og hneykslanlegar ákærur gegn pólitískum embættismönnum sem honum líkar ekki við, sé ekki treystandi til að vernda þjóðaröryggi okkar“.

Varaforsetinn JD Vance kom Pulte hins vegar til varnar og lýsti honum í færslu á samfélagsmiðlum sem „frábærum náunga sem gerir sér grein fyrir því að skrifræði leyniþjónustusamfélagsins verður að lúta hinni kjörnu forystu (frekar en öfugt)“.

Rak regluverði

Hjá Fannie Mae hefur Pulte rekið innri regluverði sem voru að rannsaka bandamenn hans og lýst þeim aðgerðum sem leið til að binda enda á stefnu um fjölbreytni, jöfnuð og inngildingu (DEI) – sem Trump hefur reynt að útrýma úr bandarískri stjórnsýslu.

Í húsnæðisfjármögnunarmálum hefur hann barist fyrir innleiðingu 50 ára húsnæðislána í Bandaríkjunum, en tillagan hefur reitt marga í MAGA-hreyfingunni til reiði.

Pulte hefur lent í deilum við fjölskyldu sína um framtíð PulteGroup-fyrirtækis þeirra og yfirgaf stjórn þess árið 2020.

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi einnig lent í deilum við fólk í innsta hring Trumps.

Árið 2025 hótaði fjármálaráðherrann Scott Bessent að kýla Pulte í kvöldverði á einkaklúbbi, að sögn Wall Street Journal og Politico.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • FÁÐU AÐGANG AÐ ÓKEYPIS AÐSTOÐ VIÐ VIÐSKIPTUM Í BEINNI VERSLUN OG MARKAÐSINNSÝNINGU. FYLGDU GULL, OLÍU, FRÉTTUM, HLUTABRÉFUM OG DULMÁLSGJALDMIÐLUM MEÐ ALFRED (Alfredthoms).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
4
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
5
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár