Fjarlægð fyrir „truflandi hegðun“ í Eurovision

Ísraelar fagna árangri í Eurovision í gær­kvöldi. Sama dag drap Ísra­els­her tvo björg­un­ar­menn. Í dag drápu þeir níu manns á þjóð­veg­inum.

Fjarlægð fyrir „truflandi hegðun“ í Eurovision
Komst áfram Noam Bettan frá Ísrael fagnar með aðdá­endum eftir að hafa verið kos­inn áfram í úrslit eftir flutn­ing sinn í fyrri und­ankeppni Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva í Wiener Stadthalle í Vín, Aust­ur­ríki, í gær­kvöldi. Mynd: AFP

Fjórum ein­stak­lingum var vísað út af fyrri und­an­úr­slita­keppni Eurovision, þar sem reynt var að trufla atriði Ísraels, að sögn skipu­leggj­enda í dag.

Þegar 28 ára gamli ísra­elski söngv­ari Noam Bettan hóf flutn­ing sinn á lag­inu „Michelle“ í beinni útsend­ingu í gær mátti heyra mót­mæl­anda hrópa „Stöðvið, stöðvið þjóð­ar­morðið“ og „Frelsi, frelsi fyrir Palest­ínu“.

Þátttaka Ísraels í Eurovision 2026 hefur orðið til þess að Spánn, Holland, Írland, Ísland og Slóvenía hafa dregið sig úr stærsta tón­list­ar­við­burði heims sem sjón­varpað er í beinni útsend­ingu.

Auk óánægju með fram­ferði Ísraels í stríð­inu við Hamas á Gasa­svæð­inu vakn­aði einnig grunur um að síma­kosn­inga­kerf­inu hefði verið hag­rætt til stuðn­ings Ísraels á síð­asta ári, þegar fram­lag lands­ins lenti í öðru sæti.

Sumar þátt­töku­stöðvar lýstu einnig yfir áhyggjum af fjöl­miðla­frelsi, þar sem Ísrael kom í veg fyrir að blaða­menn þeirra fengju aðgang að Gasa.

Eurovision er rekið af Sambandi evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU), stærsta banda­lagi fjöl­miðla í almanna­þjón­ustu í heim­inum. Sam­bandið bann­aði Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi að taka þátt vegna hern­aðar gegn Úkraínu, en ekki hefur náðst sátt um að vísa Ísrael úr keppni vegna hern­aðar gegn almennum borg­urum á Gasa­svæð­inu, Vest­ur­bakk­anum og nú í vax­andi mæli Líbanon, þaðan sem íbúum hefur verið fyr­ir­skipað að yfir­gefa syðsta hluta lands­ins næst Ísrael.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sögðu aust­ur­ríska gest­gjafa­stöðin ORF og EBU: „10.000 manna áhorf­enda­hópur í Wiener Stadthalle á fyrri und­an­úr­slita­keppni 70. Eurovision-söngvakeppn­innar í Vín­ar­borg fagn­aði hverjum lista­manni með miklum eld­móði.“

„ORF sendir út hreint hljóð í beinni útsend­ingu frá hljóð­nemum í salnum fyrir og á meðan á flutn­ingi hvers flytj­anda stendur.“

„Hann var síðar fjar­lægður af örygg­is­vörðum fyrir að halda áfram að trufla áhorf­endur.“

„Einn áhorf­andi, nálægt hljóð­nema, lét skoð­anir sínar í ljós með háværum hætti þegar ísra­elski lista­mað­ur­inn hóf flutn­ing sinn og á meðan á lag­inu stóð, sem heyrð­ist í beinni útsend­ingu. Hann var síðar fjar­lægður af örygg­is­vörðum fyrir að halda áfram að trufla áhorf­endur.“

„Þrír aðrir ein­stak­lingar voru einnig fjar­lægðir úr salnum af örygg­is­vörðum fyrir trufl­andi hegðun.“

Spurður skömmu fyrir und­an­úr­slita­keppn­ina hvort Eurovision hygð­ist lækka í áhorf­endum í útsend­ing­unni ef reynt yrði að trufla atriði Ísraels, hafði fram­kvæmda­stjór­inn Michael Kroen full­yrt: „Hljóð­styrk­ur­inn frá áhorf­endum verður sá sami fyrir alla kepp­endur.“

Fimmtán lönd kepptu í fyrri und­an­úr­slita­keppn­inni og var Bettan meðal þeirra tíu sem komust áfram í úrslita­keppn­ina á laug­ar­dag, eftir sam­an­lögð atkvæði frá almenn­ingi og dóm­nefndum í þátt­tök­u­lönd­unum.

„Ég var frjáls, ég var ég sjálfur, ég var ekta, mér fannst röddin vera á góðum stað ... og ég naut hverrar stundar,“ sagði Bettan á eftir.

„Það voru augna­blik þar sem mér fannst ég bara vera að syngja fyrir fólkið mitt heima.“

Í gær komu nokkrir tugir aðgerða­sinna sem styðja Palest­ínu fyrir lík­kistum í mið­borg Vínar til að mót­mæla þátt­töku Ísraels.

Frekari mót­mæli eru fyr­ir­huguð í aust­ur­rísku höf­uð­borg­inni það sem eftir er af Eurovision-vik­unni.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þessi viðbjóður er allur í boði USA. USA ver okkur líka en gegn hverjum er ekki vitað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útþensla Ísraels

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár