Sýna ekki Eurovision í sjónvarpinu

Rík­is­sjón­varps­stöðvar í Slóveníu, á Spáni og Írlandi munu ekki sýna frá Eurovision. Ísra­elska sendi­ráðið lagði þrýst­ing á Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra vegna Eurovision. Amnesty segir það heig­uls­hátt að halda Ísrael í keppn­inni þrátt fyrir þjóð­ar­morð.

Sýna ekki Eurovision í sjónvarpinu
Keppandi Ísraels Ísra­elski söngv­ar­inn Noam Bettan, sem keppir fyrir hönd Ísraels með lagið „Michelle“, umkringdur örygg­is­vörðum, stillir sér upp fyrir ljós­mynd­ara á túr­kís­bláa dregl­inum við opn­un­ar­há­tíð Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva 2026 á Ráð­hús­torg­inu í Vín­ar­borg í Aust­ur­ríki í gær. Við­burð­ur­inn markar form­legt upp­haf Eurovision-vik­unnar í Vín­ar­borg. Borgin mun halda und­ankeppn­irnar tvær á morgun og á fimmtu­dag og svo úrslita­kvöldið á laug­ar­dag. Mynd: AFP

Ólíkt íslenska rík­is­sjón­varp­inu til­kynntu rík­is­sjón­varps­stöðvar Spánar, Írlands og Slóveníu í dag að þau myndu ekki sýna frá 70. afmæl­is­út­gáfu Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva í vik­unni, en þau snið­ganga sjón­varps­við­burð­inn vegna þátt­töku Ísraels.

Löndin þrjú, ásamt Hollandi og Íslandi, drógu sig úr keppn­inni í ár sem haldin er í Vín­ar­borg, hefst á morgun og nær hámarki með úrslita­kvöld­inu á laug­ar­dag.

New York Times greinir frá því í frétta­skýr­ingu í dag að Ísraels stjórn­völd hafa notað Eurovision sem stökk­pall til að auka „mjúkt vald“ rík­is­ins á tímum her­ferða þess gegn Palest­ínu­mönnum og Líbönum. Í umfjöll­un­inni er vitnað í Stefán Eiríks­son útvarps­stjóra, sem þurfti að svara athuga­semdum ísra­elska sendi­ráðs­ins. „Ég er svo­lítið undr­andi á því að þetta sé mál sem sendi­ráðið er að skoða,“ skrif­aði Stefán í svari sínu til ísra­elsks diplómata í des­em­ber síð­ast­liðnum, sam­kvæmt New York Times.

Sýna umfjallanir um Palestínu og eigin framleiðslu

Stríð Ísraels á Gasa­svæð­inu varð til þess að löndin fimm drógu sig úr stærsta tón­list­ar­við­burði heims sem sýndur er í beinni útsend­ingu. Fram­kvæmda­stjóri Eurovision, Martin Green, hét því að gera „allt sem í okkar valdi stendur til að finna leið fyrir þau aftur“.

Grun­semdir vökn­uðu um að átt hefði verið við síma­kosn­inga­kerfið til að auka fylgi Ísraels í Eurovision 2025 í Basel í Sviss. Sumar sjón­varps­stöðvar lýstu einnig yfir áhyggjum af fjöl­miðla­frelsi, þar sem Ísrael kom í veg fyrir að blaða­menn þeirra kæmust inn á Gasa.

„Í stað Eurovision-sirkuss­ins verður dag­skrá rík­is­sjón­varps­ins lituð af þema­þátta­röð­inni ‚Raddir Palest­ínu‘,“ sagði sló­venska rík­is­út­varpið RTV.

Á seinna und­an­úr­slita­kvöld­inu á fimmtu­dag mun írska rík­is­út­varpið RTE sýna „The End of the World with Beanz“, þar sem Niamh Kavanagh, sig­ur­veg­ari Eurovision 1993, upp­lifir líf hrein­dýra­hirðis í Noregi.

Og á úrslita­kvöld­inu verður sýndur Eurovision-þema­þáttur af hinum vin­sæla írska gam­an­þætti frá tíunda ára­tugnum, „Father Ted“.

Spænska rík­is­út­varpið RTVE mun sýna sinn eigin tón­list­ar­þátt, „The House of Music“.

Rík­is­út­vörp í Hollandi og á Íslandi munu sýna frá keppn­inni, þrátt fyrir að hvor­ugt landið taki þátt. Ísland mun þó sýna keppn­ina á RÚV2.

„Við vonum að þau komi aftur“

Aðeins 35 lönd taka þátt í Eurovision í ár – fæst síðan þátt­taka var aukin árið 2004 – eftir að löndin fimm drógu sig úr keppni.

Aðspurður hvort þessi lönd gætu snúið aftur sagði Martin Green, yfir­maður Eurovision, að það væri „mjög mikið í umræð­unni“.

„Við söknum fimm með­lima úr fjöl­skyld­unni okkar í ár. Við söknum þeirra, elskum þau og vonum að þau komi aftur,“ sagði hann á blaða­manna­fundi í Wiener Stadthalle-höll­inni.

„Við söknum fimm með­lima úr fjöl­skyld­unni okkar í ár.“
Martin Green
Yfir­maður Eurovision.

„Við munum halda áfram við­ræðum. Við erum alveg á því að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að finna leið til baka. Að lokum er það undir þeim komið og ég virði það full­kom­lega.“

Hann svar­aði einnig spurn­ingum um hversu við­kvæmt kosn­inga­kerfið væri fyrir átta­villum.

Á laug­ar­dag sagði Green að við­vörun hefði verið send til ísra­elsku sjón­varps­stöðv­ar­innar KAN, sem tekur þátt, þar sem henni var sagt að hætta að birta mynd­bönd sem hvetja áhorf­endur til að „kjósa Ísrael 10 sinnum“, og sagði slíkar aðgerðir ekki í sam­ræmi við reglur og anda keppn­innar.

Hann benti á að í ár væru fag­dóm­nefndir teknar upp aftur á und­an­úr­slita­kvöld­unum til að vega upp á móti atkvæðum almenn­ings. „Við erum með eitt örugg­asta, trygg­asta og sann­gjarn­asta kosn­inga­kerfið,“ sagði hann við blaða­menn.

Amnesty fordæmir „hugleysi“

Eurovision var fyrst haldin árið 1956 og er rekin af Sambandi evr­ópskra sjón­varps­stöðva (EBU), stærsta banda­lagi rík­is­rek­inna fjöl­miðla í heim­inum.

Amnesty International sagði að það að EBU hefði ekki vikið Ísrael úr Eurovision, eins og gert var við Rússland eftir inn­rás­ina í Úkraínu árið 2022, væri „hug­leysi og dæmi um aug­ljósan tví­skinn­ung“.

Þátttaka Ísraels „gefur land­inu vett­vang til að reyna að beina athygl­inni frá og gera yfir­stand­andi þjóð­ar­morð sitt á hernumda Gasa­svæð­inu eðli­legt,“ sagði Agnes Callamard, fram­kvæmda­stjóri Amnesty, í yfir­lýs­ingu.

„Söngvar og glimmer mega ekki fá að yfir­gnæfa eða draga athygl­ina frá grimmd­ar­verkum Ísraels eða þján­ingum Palest­ínu­manna.“

Þjóðarmorð á Gasa

Í rann­sókn á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í sept­em­ber var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „þjóð­ar­morð eigi sér stað á Gasa“ – sem Ísrael neitar harð­lega.

For­svars­menn Eurovision hafa haldið því fram að keppnin sé hafin yfir póli­tík. Engu að var laga­text­inn við fram­lag Ísraels í fyrra og hitti­fyrra, New Day Will Rise og áður October Rain, síðar Hurricane, með aug­ljósum til­vís­unum í þján­ingu Ísraela vegna hryðju­verka­árásar Hamas 2023.

Í umfjöllun New York Times kemur fram að mark­aðs­stofa undir for­ræði Benja­míns Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra hafi varið á annað hund­rað millj­óna króna í aug­lýs­ingar á fram­lagi Ísraels í fyrra, sem lenti nokkuð óvænt í öðru sæti fyrir til­stilli atkvæða frá almenn­ingi.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Er það ekki eikennilegt að spyrja morðinjana alltaf hvot þei hafi gert nokkuð og gera svo ekkert meira.
    1
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Finnst óviðeigandi að RÚV sé að sýna keppnina við þessar aðstæður. Tek undir orð Amnesty International um að Ebu sýni heigulshátt að leyfa Ísrael að taka þátt.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár