Milljóna bónusgreiðslur ofan á forstjóralaun

For­stjórar fyr­ir­tækja sem skráð eru í íslensku kaup­höll­ina fengu sumir millj­óna króna bónusa ofan á laun sín. Sam­hengið á milli bón­us­greiðslna og árang­urs fyr­ir­tækj­anna er óljóst. Þannig fékk for­stjóri Icelandair 9 millj­óna króna bónus ofan á ríf­lega fimm millj­óna króna mán­að­ar­laun þrátt fyrir mikið tap.

Milljóna bónusgreiðslur ofan á forstjóralaun

Ellefu íslenskir for­stjórar í kaup­höll­inni fengu millj­óna króna bón­us­greiðslur ofan á laun sín á síð­asta ári. Þetta kemur fram í úttekt Heim­ild­ar­innar á launum og kjörum for­stjór­anna. Þessar við­bót­ar­greiðslur voru stór hluti tekna sumra þeirra. 

Tekjur Ásgeirs Helga réð­ust til að mynda að veru­legu leyti af árang­urstengdum greiðslum en þegar kemur að bón­us­greiðslum er hann í sér­stöðu. Hann fékk 47 millj­ónir króna í árang­urstengdar greiðslur frá Skel til við­bótar við 95 millj­óna króna laun og 21 milljón í mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð. Þá fékk hann einnig um 9 millj­óna króna greiðslu fyrir stjórn­ar­for­mennsku í Kalda­lóni, skráðu félagi þar sem Skel er stærsti fjár­festir­inn.

Hagnaður Skeljar hefur verið tölu­verður en hann dróst saman á milli ára í fyrra um rúm­lega 36 pró­sent, eða 2,5 millj­arða króna. Árang­urstengd greiðsla til Ásgeirs Helga jókst á sama tíma um 14,63 pró­sent, eða 6 millj­ónir …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Þetta er fullkomlega óskiljanlegt og siðlaust.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár