Brim selur í útgerð fyrir bréf í sjálfu sér

Stjórn út­gerð­ar­fé­lags­ins Brims hef­ur selt KG Fisk­verk­un sinn hlut í út­gerð­inni Mel­nesi á Rifi. Út­gerð­irn­ar eru Brim og KG Firsk­verk­un eru að uppi­stöðu í eigu sömu fjöl­skyld­unn­ar. Til­kynnt var um söl­una á sama tíma og stjórn Brims sam­þykkti að greiða 20 millj­arða fyr­ir Lýsi. Helm­ing­ur kaup­verðs­ins greið­ist með hlut­um í Brimi.

Brim selur í útgerð fyrir bréf í sjálfu sér
Forstjórinn Guðmundur í Brimi á 43,96 prósent í útgerðinni, í gegnum 100 prósenta eignarhlut sinn í Útgerðarfélagi Reykjavíkur. Útgerð bróður hans og sona, KG Fiskverkun, átti 3,99 prósenta hlut í Brimi, samkvæmt hluthafalista félagsins eins og hann var 30. apríl síðastliðinn. Mynd: Brim

Brim hf. hefur selt 43 prósenta eignarhlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi til KG Fiskverkunar ehf. Kaupverðið nemur 1,8 milljörðum króna, samkvæmt tilkynningu frá stjórn Brims.

Greitt verður fyrir hlutinn með hlutabréfum í Brimi. KG Fiskverkun lætur af hendi 20,7 milljónir hluta í Brimi að nafnvirði og miðast viðskiptin við gengið 88 krónur á hlut. Það var lokagengi bréfa Brims við lok markaða síðastliðinn föstudag. 

KG Fiskverkun hefur verið í hópi stærstu hluthafa Brims. Félagið er í eigu Hjálmars Þórs Kristjánssonar, sem á 10 prósenta hlut, og sona hans, þeirra Daða og Fannars Hjálmarssona, sem eiga 45 prósenta hlut hvor. Hjálmar Þór er bróðir Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims og stærsta eiganda félagsins.

Tilkynnt er um söluna á sama tíma og stjórn Brims hefur samþykkt kaup félagsins á Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum um þau viðskipti greiðist helmingur kaupverðsins með reiðufé en hinn helmingurinn með hlutabréfum í Brimi. Þar er miðað við gengið 85 krónur á hlut, þannig að seljendur Lýsis eignast 117.647.058 hluti í Brimi, sem samsvarar um 6 prósentum af heildarhlutafé félagsins.

Endursamið hefur verið um verð í Lýsisviðskiptunum. Upphaflegt kauptilboð Brims gerði ráð fyrir að verðmæti viðskiptanna næmi 30 milljörðum króna, en samkvæmt nýju samkomulagi er kaupverðið 20 milljarðar króna.

Athygli vekur að hlutabréf Brims eru metin á mismunandi gengi í þessum tveimur viðskiptum. Í viðskiptunum við seljendur Lýsis er miðað við 85 krónur á hlut, en í viðskiptunum við KG Fiskverkun er miðað við 88 krónur á hlut. Brim hefur jafnframt boðið hluthöfum að selja félaginu eigin bréf á genginu 88 krónur á hlut. 

Endurkaupin benda til þess að Brim leitist við að afla eigin hluta til að geta greitt fyrir Lýsi með hlutabréfum sem félagið hefur þegar yfir að ráða, fremur en með útgáfu nýrra hluta.

Í tilkynningunni um sölu Brims á hlutnum í Melnesi kemur ekki fram hvort sérstakt mat hafi verið lagt á viðskiptin með tilliti til tengsla aðila, né hvort óháðir aðilar hafi komið að verðmati á eignarhlutnum í Melnesi eða hlutabréfunum í Brimi sem notuð eru sem greiðsla. Í skilningi laga um fiskveiðar eru KG Fiskverkun og Brim ótengdir aðilar.

Með sölunni lætur Brim af hendi 43 prósenta eignarhlut sinn í Melnesi en fær í staðinn eigin hlutabréf frá KG Fiskverkun.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
5
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár