Inga í veikindaleyfi

Inga Sæland er farin í veik­inda­leyfi. Þetta er annar ráð­herra Flokks fólks­ins, og ann­ars mennta- og barna­mála­ráð­herra, sem fer í þannig leyfi á kjör­tíma­bil­inu.

Inga í veikindaleyfi
Inga Sæland er farin í veik­inda­leyfi í bili. Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra og for­maður Flokks fólks­ins, er farin í tíma­bundið veik­inda­leyfi að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. Þar segir enn fremur að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, muni gegna starfi mennta- og barna­mála­ráð­herra í fjar­veru hennar.

Ekki kemur fram í til­kynn­ingu hvenær áætlað er að ráð­herr­ann snúi aftur til starfa og ekki náð­ist í upp­lýs­inga­full­trúa Flokks fólks­ins vegna máls­ins.

Þetta er annar ráð­herra Flokks fólks­ins sem fer í veik­inda­leyfi á kjör­tíma­bil­inu. Áður fór Guð­mundur Ingi Krist­ins­son sem áður var einnig mennta- og barna­mála­ráð­herra. Hann sagði sig svo óvænt úr flokknum þegar hann sneri aftur á þing og bar við trún­að­ar­bresti.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár