Alvarlegustu áhættuþættir heimsins tengjast umhverfismálum

Fimm af tíu alvar­leg­ustu áhættu­þáttum næstu tíu árin tengj­ast umhverf­is­málum segir í skýrslu Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins um alþjóð­lega áhættu­þætti. „Ég held að mann­skepnan eigi svo­lítið erfitt með að horfa langt fram í tím­ann, en það er eitt­hvað sem við þurfum að gera,“ segir Hafdís Hanna Ægis­dóttir, for­stöðu­maður Sjálf­bærni­stofn­unar Háskóla Íslands.

Alvarlegustu áhættuþættir heimsins tengjast umhverfismálum
Hafdís Hanna Ægis­dóttir „Við mann­skepnan erum alltaf að hugsa: Hvar þurfum við að slökkva eld­inn núna?“ Mynd: Golli

Helm­ingur alvar­leg­ustu áhættu­þátta á heims­vísu næstu tíu árin tengj­ast umhverf­is­málum. Þetta kemur fram í nýj­ustu skýrslu Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins, WEF, sem titluð er The Global Risk Report og metur alþjóð­lega áhættu­þætti. Í efstu þremur sæt­unum eru öfga­kenndir veð­ur­at­burðir, hnignun líf­fræði­legrar fjöl­breytni og hrun vist­kerfa og krítískar breyt­ingar á kerfum jarðar. Skortur á auð­lindum og mengun skipa sjötta og tíunda sæti list­ans.

Skýrsla WEF metur alvar­leika ólíkra áhættu­þátta á heims­vísu bæði til skamms tíma, tveggja ára, og til langs tíma, tíu ára. Yfir 1.300 sér­fræð­ingar úr fræða­sam­fé­lag­inu, atvinnu­líf­inu, rík­is­stjórnum, alþjóð­legum stofn­unum og félaga­sam­tökum svara spurn­inga­könnun WEF en greindir eru 33 áhættu­þættir í heild­ina og þeim skipt í fimm áhættu­flokka: efna­hagur, umhverfi, geópóli­tík, sam­fé­lag og tækni.

Allir hópar sér­fræð­ing­anna voru sam­mála um efstu þrjú sætin í lang­tíma­á­skor­unum nema sér­fræð­ingar úr atvinnu­líf­inu sem settu mis­upp­lýs­ingar og rangupp­lýs­ingar í þriðja sæti og krítískar breyt­ingar á kerfum jarðar í það fjórða.

Þegar litið er …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JV
    Júlía Valsdóttir skrifaði
    Ég er 63 ár aldrei haft efni á að ferðast um ísland , farið 6 sinnum á ævinni til útlanda siðast fyrir 7 árum , Borga 1200 krónur I vega skatt á mánuði ,ég er komin með upp í kok á neikvæðri heimsenda fréttamennsku
    -4
  • S
    Stefán skrifaði
    Ó nei, en hræðilegt, gott að handhafar sannleikans standi vaktina,
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár