Móðir lést í fæðingu á Landspítalanum

Ung móðir féll frá en sonur hennar dvelur á vöku­deild. Fimm konur höfðu þá lát­ist af völdum þung­unar frá árinu 1981.

Móðir lést í fæðingu á Landspítalanum
Fjöl­skyldan Steinunn Lóa Haf­þórs­dóttir lést á Land­spít­al­anum við fæð­ingu og er fjöl­skyldan í sárum. Mynd: Facebook / Írena Huld Halldórsdóttir

Steinunn Lóa Haf­þórs­dóttir var nýorðin þrí­tug þegar hún lést við fæð­ingu sonar síns á Land­spít­al­anum 19. maí síð­ast­lið­inn. Fjöl­skylda hennar, Hjalti Ein­ars­son og stjúp­dóttirin Amalía Erla, sitja eftir í sárum og nýfæddur sonur þeirra dvelur enn á vöku­deild spít­al­ans vegna súr­efn­is­skorts í fæð­ingu.

Vinkonur Stein­unnar hafa blásið til söfn­unar fyrir fjöl­skyld­una og deila frá­sögn­inni á Facebook.

Andlát móður í fæð­ingu er afar sjald­gæft á Íslandi. Frá árinu 1981 höfðu fimm konur lát­ist vegna „fylgi­kvilla þung­unar, barns­burðar og sæng­ur­legu,“ sam­kvæmt tölum Hag­stof­unar, eða um ein á ára­tug. Þar af varð eitt and­lát 2022, annað 2011 og það þriðja 2001. Kona lést árið 1990 og önnur árið 1987 af sömu orsökum.

„Það er ólýs­an­lega sárt að þurfa að kveðja svona ein­staka, fal­lega og kær­leiks­ríka mann­eskju alltof snemma,“ segir í færslu vin­kvenna hennar, sem sjá má hér fyrir neðan.

„Steinunn snerti líf svo margra með hlýju sinni, fal­lega bros­inu og þeirri ein­stöku nær­veru sem fylgdi henni hvert sem hún fór. Orðin duga varla til að lýsa miss­inum sem við finnum öll fyrir.“

Þær segja að fjöl­skyldan muni standa frammi fyrir miklum áskor­unum og erf­ið­leikum í líf­inu vegna þessa ólýs­an­lega áfalls.

„Við vin­konur Stein­unnar Lóu höfum ákveðið að setja af stað söfnun fyrir fjöl­skyldu hennar til að létta undir á þessum erf­iða tíma, svo þau geti ein­beitt sér að því sem skiptir mestu máli núna - að syrgja, standa saman og vera hjá litla drengnum sínum,“ segja þær.

„Framundan er langur og erf­iður vegur, bæði and­lega, til­finn­inga­lega og fjár­hags­lega, og því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja þau í gegnum þennan tíma.“

Útför Stein­unnar fer fram í næstu viku frá Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JV
    Júlía Valsdóttir skrifaði
    Sorglegt hvað það er mikill afturföt í fæðingaaðstoð á landspítalunum að kona deyi þegar hún er að eiga barn ,að fæðingin se látin taka svo marga klukkutíma að barnið verði fyrir súrefnisskort ,se komið meiri háttar fötlun , heilbrigðisstarfsfólk til skammar😡😡😡😡😡😡
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár