Skelfileg aðkoma eftir innbrot í svínabú: Gyltur með áverka og dauðir grísir

„Þeg­ar starfs­fólk kom til vinnu um morg­un­inn blasti við skelfi­leg sjón. Dýr­in voru aug­ljós­lega í miklu upp­námi og í óreið­unni höfðu þau slas­að bæði sig sjálf og hvert ann­að. Sér­stak­lega þung­bært var að finna dauða grísi eft­ir nótt­ina,“ seg­ir Geir Geirs­son for­stjóri.

Skelfileg aðkoma eftir innbrot í svínabú: Gyltur með áverka og dauðir grísir

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfararnótt mánudags. Tvær hurðir voru brotnar upp og miklar skemmdir unnar á skrifstofum og svínahúsum. Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar, með þeim afleiðingum að dýrin gengu laus um húsin og út á tún í myrkri og slagviðri. 

Í yfirlýsingu frá Stjörnugrís segir afleiðingarnar alvarlegar fyrir dýrin. Tíu smágrísir hafi drepist í ringureiðinni sem skapaðist við innbrotið. „Til að mynda Þurfti að aflífa einn vegna kjálkabrots. Þá eru fjölmargar gyltur með áverka, meðal annars haltar og rispaðar, og eitt fósturlát hefur þegar orðið,“ segir í yfirlýsingunni. 

Forstjóri Stjörnugríss, Geir Gunnar Geirsson, lýsir aðstæðum á vettvangi: „Þegar starfsfólk kom til vinnu um morguninn blasti við skelfileg sjón. Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina.“

Hafa áhyggjur af frekari afleiðingum

Starfsfólk varð fyrir áfalli við að sjá vinnustaðinn og dýrin í þessu ástandi og var sent heim. Gert er ráð fyrir því að frekari afleiðingar muni birtast á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fósturláta. 

Þá segir að brotið hafi verið gegn smitvörnum búsins. Dýr úr mismunandi hópum hafi blandast saman og sum farið út fyrir húsakynni búsins. 

„Umfang og framkvæmd verknaðarins benda til þess að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Af verksummerkjum má ráða að brotið hafi verið framið undir yfirskyni dýravelferðar, þrátt fyrir að afleiðingar gjörðanna hafi valdið dýrunum verulegu tjóni og þjáningum.“

Kært til lögreglu

Málið hefur verið kært til lögreglu sem hefur málið til rannsóknar. Að auki hafa Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis verið upplýst um atvikið. 

„Þetta er ekki aðeins töluvert eignatjón heldur fyrst og fremst mjög alvarlegt mál fyrir dýrin sjálf. Að ráðast inn að næturlagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veruleg áhrif á líðan þeirra og öryggi,“ segir Geir. 

„Mjög alvarlegt er þegar ró raskast hjá gyltum með got. Spenagrísir eru afar viðkvæmir fyrstu dagana og ef þeir týna móður sinni eða lenda hjá rangri gyltu getur hún hafnað þeim. Þá fá þeir hvorki næga næringu né vernd og geta veikst eða drepist á skömmum tíma.“

Ætla að bæta aðbúnað dýranna 

Forstjórinn áréttar síðan að Stjörnugrís hafi unnið að undirbúningi umfangsmikilla framkvæmda með það að markmiði að bæta aðbúnað dýranna. Enn bíða þó ákveðin mál úrlausnar stjórnvalda áður en hægt verði að ráðast að fullu í þær framkvæmdir. 

Hvetur hann innbrotsþjófana til að gefa sig fram: „Við viljum jafnframt hvetja þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu. Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns.

Ég tel að allir hljóti að fordæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
1
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?
Borgþór Arngrímsson
4
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár