Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar

Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir sér en ávöxt­un Nið­ur­lend­ing­anna má heita býsna góð!

Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Þessi mynd á að sýna New York 1626 en hætt er við að virkið, sem Niðurlendingar reistu, hafi þá ekki verið orðið svo myndarlegt sem þarna má sjá. Mynd: New York 1626

Þann 5. nóvember 1626 settist niðurlenski kornkaupmaðurinn Pieter Schagen niður á skrifstofu sinni í Amsterdam og skrifaði bréf. Schagen var rétt tæplega fimmtugur og ekki við eina fjölina felldur. Auk kaupmennskunnar var hann tónlistarmaður góður og allvinsælt tónskáld. Hann sat í stjórn Niðurlenska Vesturindíafélagsins sem annaðist verslun og siglingar vestur um haf þar sem mörg Evrópuríki voru enn að þreifa fyrir sér í nýja heiminum, svokallaða. Og Schagen var líka í ríkisráði Niðurlanda og bréfið sem hann skrifaði var einmitt til félaga hans í því ráði.

Hann ávarpaði félaga sína einkar kurteislega:

„Hooghe Moghende Herren ...“

Það mætti þýða sem:

„Háu og voldugu herrar.“

Og svo hélt Schagen áfram:

„Í gær kom hingað skipið Skjaldarmerki Amsterdam og hafði það siglt hinn 23. september frá Nýja Niðurlandi við ósa Máritíusarfljóts. Skipverjar segja að fólki okkar þar vegni vel og lifi í friði. Konur þeirra hafa jafnframt eignast börn þar í …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Síðasta málsgreinin fjallar um sannleikann í málinu - að hugmyndir um eignarhald voru mjög ólíkar og að í raun var enginn menningarlegur samsvörun við kaup. Það tengist náið fornum siðum eins og gjafagjöf, heimanmund og svo framvegis (til dæmis í Íslendingasögum) þar sem það er ekki bara einföld og fullkomin eignarflutningur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
4
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu