Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð

Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænskra jafn­að­ar­manna, segir við­ræður við hina þrjá flokk­ana í vinstri­banda­lag­inu ekki hafa skilað grund­velli fyrir rík­is­stjórn. Þing­for­seti er tal­inn munu fela öðrum flokks­leið­toga að reyna stjórn­ar­myndun, lík­lega frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, Ulf Kristers­son.

Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænska Jafn­að­ar­manna­flokks­ins, og Ulf Kristers­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, leið­togi Hægri­flokks­ins, í sjón­varp­s­kapp­ræðum TV4 í Stokk­hólmi þremur dögum fyrir þing­kosn­ing­arnar. Mynd: Jonathan NACKSTRAND / AFP

Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænskra jafn­að­ar­manna, sagði í dag að sér hefði ekki tek­ist að mynda rík­is­stjórn með hinum þremur flokk­unum í vinstri­banda­lag­inu eftir þing­kosn­ing­arnar 13. sept­em­ber.

„Á grund­velli þeirra við­ræðna sem ég hef átt get ég í heild­ina tekið dregið þá ályktun að eins og staðan er núna sé mér ekki unnt að mynda rík­is­stjórn,“ sagði hún við frétta­menn.

Búist er við að þing­for­seti feli öðrum flokks­leið­toga að reyna stjórn­ar­myndun, lík­lega Ulf Kristers­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem nú fer fyrir starfs­stjórn.

Hægri flokk­arnir undir for­ystu Kristers­sons, þar á meðal Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir sem eru lengst til hægri, töp­uðu kosn­ing­unum naum­lega. Vinstri­banda­lagið hlaut 176 þing­sæti gegn 173 sætum hægri flokk­anna og verður Kristers­son erfitt að tryggja sér meiri­hluta á þingi.

Eftir ósig­ur­inn sagð­ist hann reiðu­bú­inn að kanna leiðir til að mynda meiri­hluta með þeim sem væru ekki sós­í­alistar.

Talið er að hann vilji fá Mið­flokk­inn til liðs …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár