„Ég er oddviti flokksins og geri það sem ég vil,“ svaraði Guðmundur Ingi Þóroddsson, nýr oddviti Flokks fólksins, en í Oddvitasamtali Heimildarinnar var ákvörðun upplýsingafulltrúa flokksins, Heimis Más Helgasonar, rædd, þar sem flokkurinn hafnaði því að mæta í Silfur Egils að ræða nýtt framboð. Ákvörðunin vakti athygli þar sem svo virtist sem upplýsingafulltrúinn hefði tekið þá ákvörðun, og oddvitinn ekki vitað um hana fyrr en hún var tilkynnt í þættinum. Guðmundur Ingi segir þetta raunar misskilning.
„Ég var fullmeðvitaður um þetta. Þetta var sameiginleg ákvörðun sem var tekin á þeim tímapunkti,“ sagði Guðmundur Ingi en kosningastjórn ákvað það saman að svona skyldu þeir gera þetta.
Spurður hvað kom þá á óvart eins og kom fram í fyrstu fréttum, svaraði Guðmundur Ingi: „Það sem kom mér á óvart var að fréttaþulurinn sagði að ég hefði hafnað því. Ég var ekki í samskiptum við hann, það var það sem kom mér á …



















































Athugasemdir