Kína hótar ESB gagnaðgerðum

„Made in Europe“ stefna Evr­ópu­sam­bands­ins til vernd­ar störf­um kall­ar fram hót­an­ir frá Kína um mót­vægisað­gerð­ir.

Kína hótar ESB gagnaðgerðum
Bakkað frá viðskiptafrelsi Emmanúel Macron Frakklandsforseti, Xi Jinping, forseti Kína, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hittast hér í Beijing í Kína 2023. Mynd: AFP

Stjórnvöld í Peking gagnrýndu harðlega í dag áætlun ESB sem miðar að því að efla iðnað sambandsins gegn harðri samkeppni frá Kína og hótuðu gagnaðgerðum ef hún yrði að veruleika.

ESB kynnti í mars nýjar reglur undir slagorðinu „Framleitt í Evrópu“ (Made in Europe) fyrir fyrirtæki sem reyna að fá aðgang að opinberu fé í stefnumarkandi geirum, þar á meðal í bílaframleiðslu, grænni tækni og stáliðnaði. Reglurnar skylda fyrirtækin til að uppfylla lágmarkskröfur um að íhlutir séu framleiddir innan ESB.

Tillagan, sem hefur tafist mánuðum saman vegna deilna um aðgerðirnar, er lykilþáttur í viðleitni Evrópusambandsins til að endurheimta samkeppnisforskot sitt, draga úr hnignun iðnaðarins og koma í veg fyrir að hundruð þúsunda starfa glatist í harðri samkeppni við Kína, sem hefur yfirburði í grænni tækni.

Viðskiptaráðuneytið í Peking sagði að það hefði sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins athugasemdir á föstudag þar sem Kína lýsti yfir „alvarlegum áhyggjum“ af lögunum sem það kallaði „kerfisbundna mismunun“.

„Ef ESB … heldur áfram með löggjöfina og skaðar þar með hagsmuni kínverskra fyrirtækja, mun Kína ekki eiga annarra kosta völ en að grípa til gagnráðstafana til að verja með afgerandi hætti lögmæt réttindi og hagsmuni fyrirtækja sinna,“ varaði viðskiptaráðuneytið við í yfirlýsingu.

Evrópsk fyrirtæki í mörgum þeirra geira sem tillagan varðar hafa lengi kvartað yfir því að þau standi frammi fyrir ósanngjarnri samkeppni frá kínverskum keppinautum sem njóta mikilla niðurgreiðslna kínverska ríkisins.

Tillaga ESB, sem formlega er þekkt sem „Industrial Accelerator Act“, beinist óbeint að kínverskum framleiðendum rafgeyma og rafknúinna ökutækja með því að krefjast þess að erlend fyrirtæki gangi í samstarf við evrópsk fyrirtæki og miðli tækniþekkingu þegar þau hefja starfsemi innan sambandsins.

Kínverska viðskiptaráðið hjá ESB sagði í þessum mánuði að áætlunin markaði breytingu í átt að verndarstefnu sem myndi hafa áhrif á viðskiptasamstarf milli ESB og Kína.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
2
Greining

Formað­ur, vara­formað­ur og rit­ar­ar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hætt á þingi

Einu og hálfu ári frá al­þing­is­kosn­ing­um hafa fjór­ir áhrifa­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki horf­ið af þingi og til annarra starfa. Fyrr­ver­andi for­ysta er öll horf­in, nú þeg­ar flokk­ur­inn er í stjórn­ar­and­stöðu. Góð­ur ár­ang­ur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um gef­ur flokkn­um byr und­ir nýj­um leið­tog­um í sveit­ar­fé­lög­um og á landsvísu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár