Eltihrellir sagður hrella ólögráða barn og lýsa föður látinn í Morgunblaðinu

Ír­is Helga Jónatans­dótt­ir er sök­uð um að hafa birt falska dán­ar­til­kynn­ingu í Morg­un­blað­inu í dag. Mað­ur­inn þurfti að sverja af sér að vera lát­inn og nafn­grein­ir hana og móð­ur henn­ar í tengsl­um við mál­ið.

Eltihrellir sagður hrella ólögráða barn og lýsa föður látinn í Morgunblaðinu
Íris Helga Jónatansdóttir kom fram í hlaðvarpi á vegum Brotkasts á síðasta ári þar sem hún hélt því fram að ásakanir á sínar hendur væru ósannar. Mynd: Brotkast

Morgunblaðið hefur beðist afsökunar á að hafa birt dánartilkynningu manns sem var ekki látinn í blaði sínu í morgun, eftir að hafa verið beitt blekkingum. Maðurinn sem um ræðir heitir Sölvi Guðmundarson og hefur áður stigið fram vegna ásakana á hendur Írisi Helgu Jónatansdóttur, fyrir að beita sig og ólögráða dóttur sína umsáturseinelti. Hann hefur að auki kært Írisi til lögreglu vegna þessa, en að minnsta kosti níu einstaklingar hafa leitað til lögreglu vegna ofsókna og umsáturseineltis henni tengdu og sjö kært hana vegna slíks áreitis.

Sölvi birti í morgun færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá andlátstilkynningunni sem birtist í Morgunblaðinu.

Sölvi GuðmundarsonFregnir af andláti Sölva eru vægast sagt ýktar.

„Kæru ættingjar og vinir, þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi. Svona sjáið þið hvernig fárveik kona og móðir …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Við erum alltaf að velja okkur stjórnvöld sem lofa lægri sköttum þannig að ekkert verður úr uppbyggingu sem snýr að andlega veikum. Mál eru látin niðurfalla hvað eftir annað vegna kunnáttu, aðstöðuleysis og skorts á fjármagni. Við dælum þess í stað út geðlyfjum til þess að spara svo lækka megi fjárframlög til þessara mála.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Veikindi fólks er af ýmsum toga. Suma þarf hreinlega loka inni.
    Fyrst móðirin er með í þessum ,,leik" þá leggur maður saman 2+2 og fær út 4

    Þessar mæðgur þurfa mikla hjálp.🙏
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Náttúrubarnið í Sænautaseli
3
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár