Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti: Saksóknari listar upp 68 atvik

Dómsmál gegn Írisi Helgu Jón­atans­dóttur verður þing­fest á morgun en ákæran er hátt í 20 blað­síður. Þar er Íris meðal ann­ars sögð hafa logið kyn­ferð­is­legri áreitni upp á nem­endur í grunn­skóla.

Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti: Saksóknari listar upp 68 atvik
Íris Helga Jón­atans­dóttir Íris Helga Jón­atans­dóttir kom fram í drottn­inga­við­tali á Brot­kasti þar sem hún neit­aði sök varð­andi ásak­anir um umsát­ursein­elti. Mál hennar verður dóm­tekið á morgun. Mynd: Brotkast

Íris Helga Jón­atans­dóttir hefur verið ákærð fyrir umsát­ursein­elti, rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, hót­anir, æru­meið­andi aðdrótt­anir og barna­vernd­ar­laga­brot. Brotin bein­ast gegn fjórum full­orðnum ein­stak­lingum og börnum þeirra. Málið verður þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­ness á morgun.

Íris Helga er ekki sú eina sem er ákærð í mál­inu heldur er karl­maður, sem fæddur er árið 1979, einnig ákærður fyrir að hafa átt hlut að máli þegar hann mak­aði skít á hurð­ar­húna og bíl á heim­ili fjöl­skyldu sem Íris er sökuð um að hrella. Þolendur fara fram á sam­an­lagðar miska­bætur upp á rúmar níu millj­ónir króna.

Athygli vekur að Íris er ekki ákærð fyrir að hafa komið því til leiðar að dán­ar­til­kynn­ing eins þolenda hennar birt­ist í Morg­un­blað­inu í apríl síð­ast­liðnum og vakti lands­at­hygli. Á meðal ákæru­liða er hins vegar að Íris …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Hjámererþettaelskiðfriðinnogstrjúkiðkviðinn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár