Hættur og getur ekki stutt stríðið við Íran

For­stjóri banda­rísku mið­stöðv­ar­innar gegn hryðju­verkum fær nóg og sendir Trump upp­sagn­ar­bréf, sem hér er birt orð­rétt. „Gott að hann sé far­inn,“ svarar Trump.

Hættur og getur ekki stutt stríðið við Íran
Joseph Kent Missti eig­in­konu sína í árás í Sýrlandi. Mynd: AFP

Hátt­settur banda­rískur emb­ætt­is­maður í bar­átt­unni gegn hryðju­verkum sagði af sér í dag til að mót­mæla stríði Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran og sagði að Banda­ríkj­unum staf­aði enga yfir­vof­andi ógn af íslamska lýð­veld­inu.

„Ég get ekki með góðri sam­visku stutt yfir­stand­andi stríð í Íran,“ sagði Joseph Kent, for­stjóri Mið­stöðvar gegn hryðju­verkum (NCTC), í afsagn­ar­bréfi sínu til Donalds Trump for­seta.

Kent – fyrr­ver­andi með­limur sér­sveit­ar­innar Green Berets sem fór í margar her­ferðir – sagði að „Íran staf­aði engin yfir­vof­andi ógn að þjóð okkar og það er ljóst að við hófum þetta stríð vegna þrýst­ings frá Ísrael og öfl­ugum banda­rískum hags­muna­sam­tökum þeirra.“

Kent, 45 ára, sem var skip­aður af Trump til að stýra NCTC, er fyrsti hátt­setti banda­ríski emb­ætt­is­mað­ur­inn til að segja af sér í stjórn­ar­tíð hans til að mót­mæla stríð­inu gegn Íran.

Trump, sem ræddi við frétta­menn í for­seta­skrif­stof­unni, sak­aði Kent um að vera „mjög veikur í örygg­is­málum“ og sagði að það væri „gott að hann sé far­inn.“

Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, hafn­aði meintum „fölskum full­yrð­ingum“ í afsagn­ar­bréfi Kents og sagði þá stað­hæf­ingu að ákvörð­unin um að fara í stríð hafi verið tekin „á grund­velli áhrifa ann­arra“ vera „móðg­andi og hlægi­lega“.

„Eins og Trump for­seti hefur skýrt og afdrátt­ar­laust tekið fram, hafði hann sterkar og sann­fær­andi sann­anir fyrir því að Íran ætl­aði að ráð­ast fyrst á Banda­ríkin,“ sagði Leavitt, en Trump hefur sagt að hann hafi haft „á til­finn­ing­unni“ að Íran myndi gera árás, án þess að birta nokkrar sann­anir þess.

„Trump for­seti tók að lokum þá ákvörðun að sam­eig­in­leg árás með Ísrael myndi draga veru­lega úr áhætt­unni fyrir líf Banda­ríkja­manna sem fylgdi fyrstu árás hryðju­verka­stjórn­ar­innar í Íran og takast á við þessa yfir­vof­andi ógn við þjóðar­ör­ygg­is­hags­muni Banda­ríkj­anna,“ sagði hún.

Eig­in­kona Kents, Shannon, þjón­aði einnig í banda­ríska hernum og lést í sjálfs­morðs­sprengju­árás í Sýrlandi árið 2019.

„Sem ekk­ill sem missti ást­kæra eig­in­konu mína Shannon í stríði sem Ísrael bjó til, get ég ekki stutt það að senda næstu kyn­slóð til að berj­ast og deyja í stríði sem þjónar hvorki­hags­munum banda­rísku þjóð­ar­innar né rétt­lætir kostn­að­inn af lífi Banda­ríkja­manna,“ skrif­aði Kent.

Falsupplýsingaherferð

Sem yfir­maður NCTC starf­aði Kent undir Tulsi Gabbard, yfir­manni leyni­þjón­ustu­mála, við að greina og sam­ræma við­brögð Banda­ríkj­anna við hryðju­verkaógnum og starf­aði sem aðal­ráð­gjafi for­set­ans í bar­átt­unni gegn hryðju­verkum.

„Fram í júní 2025 skildir þú að stríðin í Mið­aust­ur­löndum voru gildra sem rændi Banda­ríkin dýr­mætum lífum föð­ur­lands­vina okkar og eyddi auði og vel­megun þjóðar okkar,“ sagði Kent í bréfi sínu til Trumps, sem hann birti á X.

Kent sak­aði „hátt­setta ísra­elska emb­ætt­is­menn og áhrifa­mikla með­limi banda­rískra fjöl­miðla“ um að hafa staðið fyrir fals­upp­lýs­inga­her­ferð sem „sáði árás­ar­gjörnum við­horfum til að hvetja til stríðs við Íran.“

„Þessi berg­máls­hellir var not­aður til að blekkja þig til að trúa því að Íran staf­aði yfir­vof­andi ógn að Banda­ríkj­unum og að þú ættir að gera árás núna,“ sagði hann.

„Þetta var lygi og er sama aðferð og Ísraelar not­uðu til að draga okkur inn í hið hörmu­lega Íraks­stríð,“ sagði Kent.

„Ég get ekki stutt það að senda næstu kyn­slóð til að berj­ast og deyja í stríði sem þjónar engum hags­munum banda­rísku þjóð­ar­innar né rétt­lætir kostn­að­inn af lífi Banda­ríkja­manna,“ bætti hann við.

Mark Warner öld­unga­deild­ar­þing­maður, æðsti demókrati í leyni­þjón­ustu­nefnd öld­unga­deild­ar­innar, sagði að „fer­ill Kents sé mikið áhyggju­efni.“

„En í þessu máli hefur hann rétt fyrir sér: það voru engar trú­verð­ugar sann­anir fyrir yfir­vof­andi ógn frá Íran sem myndi rétt­læta að Banda­ríkin yrðu hrakin út í annað val­kvætt stríð í Mið­aust­ur­löndum,“ sagði Warner.

Kent bauð sig tvisvar fram án árang­urs – árin 2022 og 2024 – sem repúblikani með stuðn­ing Trumps fyrir sæti í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings fyrir Washington-fylki.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það stenst ekki að þjóð jafn skemtilega samsett og USA láti draga sig á asnaeyrunum vegna hræðslu og aumingjaskapar sértrúarfólks, Íran er að vísu stjórnað af fólki af sama meiði, en hverjir skópu þá valdhafa ? Við. Það kemur að því að einhver þorir að standa uppi í (á)hárinu á þessum gapuxa, ddt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár