Aftur enginn hagvöxtur á mann á Íslandi

Hag­vöxt­ur var engu meiri en vöxt­ur mann­fjöld­ans á Ís­landi í fyrra. Er­lend­um rík­is­borg­ur­um fjölg­aði meira en ís­lensk­um.

Aftur enginn hagvöxtur á mann á Íslandi
Daði Már Kristófersson Fjármálaráðhera segir hagkerfi Íslands hafa staðnað. Mynd: Golli

Hagvöxtur leiðréttur fyrir íbúafjölgun var enginn á Íslandi í fyrra. Síðustu ár hefur hagvöxtur á mann verið minni á Íslandi en í Evrópusambandinu og oft enginn.

Ástæðan er að þjóðarframleiðsla hefur lítið aukist á sama tíma og mikil mannfjölgun hefur verið á Íslandi. Í fyrra fjölgaði íbúum um 1,3% á landinu og var vöxtur landsframleiðlunnar sömuleiðis 1,3%.

Landsframleiðsla á mann hefur minnkað

Í minnisblaði fjármálaráðherra til þjóðhagsráðs í síðustu viku kom fram að landsframleiðsla á mann hefði verið lægri árið 2024 en níu árum áður, árið 2016. Þar kemur fram áfellisdómur yfir íslensku hagkerfi.

„Af hagtölum að dæma virðist ekki sem hagkerfið sé í niðursveiflu heldur eru drifkraftar tímabundins hagvaxtar í rénun og við blasir hagkerfi sem hefur lítið sem ekkert vaxið, leiðrétt fyrir fólksfjölgun, í hartnær áratug. Útflutningur á hvern íbúa hefur beinlínis dregist saman, og það allnokkuð,“ segir í minnisblaðinu.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Höfum í huga að hagvöxtur er ekki endilega jákvæður. Það getur til dæmis mælst sem hagvöxtur þegar það er verið að spilla náttúrunni með einhverjum framkvæmdum eða þegar fólk notar heilbrigðisþjónustu eða þegar það þarf að reisa varnargarða í kringum Grindavík og fullt af öðrum framkvæmdum sem fara fram í samfélaginu okkar og betra væri að hægt væri að sleppa við að þurfa framkvæma.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Engin furða að verðbólga sé hér á fullri ferð. Launahækkanir frá 5 til 10% og enginn hagvöxtur á mann. Launakostnaður er einu sinni lang stæsti rekstrarliður hagkerfisins. Vonandi fara svo kallaðir aðilar vinnumarkaðarins að horfast í augu við raunveruleikann. Ákveði verkalýðshreyfingin að segja upp samningum í haust til að knýja á um frekari launahækkanir er hún ekki að gera neitt annað en að skjóta sig í fótinn. Þeir verst settu verða ævinlega fyrst undir skriðunni, því miður. Ítrekaðar tilraunir til að leika á staðreyndir tilverunnar verða að teljast fullreyndar.
    1
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Undanfarin áratug hefur öll áhersla verið á að breyta Íslandi í láglaunaland með láglaunaatvinnugreinum eins og ferðaþjónustu. Framleiðni í láglaunaatvinnugreinum er almennt mjög lág og því dregst þjóðarframleiðsla á mann hratt saman og hagsæld íbúa þar með. Ég sá frétt í morgun frá Barcelóna á Spáni. Þar hefur ferðaþjónustan vaxið of hratt og innviðaskuldir eru því orðnar óviðráðanlegar. Samt er fjöldi ferðamanna á hvern íbúa á Barcelona svæðinu bara lítið brot af því sem hann er á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi. Í Barcelóna á því að setja hömlur á vöxt gistirýmis m.a. á AirBnb og innheimta gistináttagjald. Sambærileg gjaldtaka mundi skila mörgum tugum milljarða í ríkiskassann á Íslandi, stórauka þannig þjóðarframleiðslu og hægja á stjórnlausum vexti ferðaþjónustu og innviðaskulda. Þetta mundi líka gjörbreyta stöðunni á fasteignamarkaði til hins betra á skömmum tíma. Á annan tug milljarða mundi líka sparast á ári við framkvæmdir við stækkun Keflavíkurflugvallar, því ekki yrði lengur þörf á gríðarlega hraðri aukningu á afkastagetu flugvallarins ef dregið yrði úr vexti ferðaþjónustunnar. Góð tug milljarða búbót í staðinn í ríkissjóð. Í dag fer meira fé í stækkun Keflavíkurflugvallar á hverju ári en í allar nýframkvæmdir á vegakerfinu utan þéttbýlis. Samantekið þá mundi skapast langþráð svigrúm fyrir ríkissjóð til að efla hálauna þekkingar atvinnugreinar með tilstuðlan eflingar samkeppnis rannsóknar- og nýsköpunarsjóða og með eflingu raungreina (STEM) í skólakerfinu öllu. Þannig yrði vörðuð braut aukinnar þjóðarframleiðslu á íbúa og hratt vaxandi hagsældar.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
4
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
6
Efnahagsmál

Rík­ið yrði af 1,6 millj­arða tekj­um ef gjalda­hækk­an­ir fylgdu verð­bólgu­mark­miði

Fjár­mála­ráðu­neyt­ið met­ur tekjutap ef gjalda­hækk­an­ir verða tak­mark­að­ar við verð­bólgu­markmið Seðla­bank­ans vera 1,6 millj­arða króna. Eng­in ákvörð­un hef­ur ver­ið tek­in en Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir rík­is­stjórn­ina reiðu­búna að tak­marka hækk­an­ir við 2,5 pró­sent ef aðr­ir leggi sitt af mörk­um og kjara­samn­ing­ar haldi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár