Ísrael drap tvo þriðju allra fallinna blaðamanna

Met­fjöldi blaða­manna voru drepn­ir á ár­inu 2025.

Ísrael drap tvo þriðju allra fallinna blaðamanna
Benjamín Netanjahú Forsætisráðherra Ísraels hefur leitt árásir á Gaza. Alls létust 86 blaðamenn vegna árása Ísraels í fyrra. Mynd: JOE RAEDLE / GETTY IMAGES NORTH AMERICA

Metfjöldi, eða 129 blaða- og fjölmiðlamenn, létu lífið um allan heim árið 2025, sagði Nefnd til verndar blaðamönnum (CPJ) í dag. Ísrael bar ábyrgð á um tveimur þriðju dauðsfallanna.

Þetta var annað árið í röð sem met var slegið í fjölda látinna blaðamanna og mannskæðasta árið síðan CPJ hóf gagnaöflun fyrir meira en þremur áratugum.

„Blaðamenn eru drepnir í metfjölda á tímum þegar aðgangur að upplýsingum er mikilvægari en nokkru sinni fyrr,“ sagði Jodie Ginsberg, framkvæmdastjóri nefndarinnar, í yfirlýsingu.

„Við erum öll í hættu þegar blaðamenn eru drepnir fyrir að flytja fréttir.“

Meira en þrír fjórðu allra dauðsfalla árið 2025 urðu á átakasvæðum, sagði CPJ í skýrslu sinni.

Meira en 60 prósent af þeim 86 fjölmiðlamönnum sem féllu fyrir skotum Ísraelsmanna árið 2025 voru Palestínumenn sem störfuðu á Gaza, bætti nefndin við.

Ísraelsher heldur því fram að hann beini aldrei vísvitandi spjótum sínum að blaðamönnum.

Heimildin fjallaði ítarlega um dráp á blaðamönnum á Gaza í umfjöllun síðasta haust, þar sem nöfn og myndir þeirra föllnu voru birtar.

Fjöldi blaðamanna sem létu lífið í Úkraínu og Súdan jókst einnig árið 2025 miðað við árið áður.

CPJ benti á aukna notkun dróna, en 39 tilfelli voru skráð, þar af 28 morð af völdum Ísraels á Gaza og fimm af völdum RSF-sveitanna í Súdan.

Í Úkraínu létu fjórir blaðamenn lífið af völdum rússneskra herdróna, sem er mesti fjöldi látinna blaðamanna í stríðinu á einu ári síðan 15 létu lífið árið 2022.

Blaðamenn eru í sífellt meiri hættu vegna viðvarandi refsileysis, sagði CPJ, og benti á skort á gagnsæjum rannsóknum á morðum.

Í Mexíkó voru sex blaðamenn drepnir árið 2025 og öll málin eru enn óleyst. Á Filippseyjum voru þrír blaðamenn skotnir til bana.

Aðrir voru drepnir í kjölfar fréttaflutnings um spillingu, eins og bangladesskur fréttamaður sem var höggvinn til bana af grunuðum aðilum sem tengdust svikahring, samkvæmt skýrslu CPJ.

Svipuð dauðsföll tengd skipulagðri glæpastarfsemi voru skráð á Indlandi og í Perú.

Í Sádi-Arabíu var þekktur dálkahöfundur, Turki al-Jasser, tekinn af lífi af ríkinu eftir að hafa verið sakfelldur fyrir nokkur brot sem CPJ líkti við „falskar ásakanir um brot gegn þjóðaröryggi og fjármálaglæpi“ sem notaðar eru til að refsa fréttamönnum.

Þetta var fyrsta skrásetta morðið á blaðamanni í Sádi-Arabíu síðan Jamal Khashoggi lést árið 2018.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur með fullum stuðningi ríkis sem heldur að það sé lýðræðisríki, ríki sem hefur makalaus hreðjartök á heimsbyggðinni og allri sóun sem við þekkjum frá upphafi vega. Mannkynið ætlar að eyða sér þegandi og hljóðalaust fyrir örfáa hálvita sem sjá ekki fram fyrir budduna sína.
    1
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    No surprise! All faschistoide and colonial powers fear the media as a fourth column in a democratic state!
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er fátt sem að valdið óttast meira en að almenningur viti hvað þeir hafast að. Kannski verður sjálfstæð gagnrýnin hugsun partur af veröld sem var, altént verður það þannig ef við ýtum ekki á móti sem fyrst og sem fastast.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

Sáu sárin sem hún faldi
1
Viðtal

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
4
Viðtal

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár