Mynd: AFP

Fórnuðu lífi sínu fyrir sannleikann

Í engum stríðs­átökum hafa fleiri blaðamenn verið drepnir en þeim sem hafa geisað á Gaza síðastliðin tvö ár. Formaður Blaðamanna­félags Íslands segir að þeir fáu sem séu þar enn starfandi séu „bókstaf­lega að berjast fyrir lífi sínu“. Alþjóðleg samtök og stofnanir hafa sakað Ísrael um að gera blaðamenn að skot­mörkum.

„Það sem er að gerast á Gaza er glæpur gegn lífinu,“ sagði tónlistar­konan og aðgerða­sinninn Margrét Kristín Blöndal, fyrsti Íslend­ingurinn til að taka þátt í leiðangri með hinum svokallaða Frelsis­flota, eða Gaza Freedom Flotilla, til Gaza. 

„Það er skylda okkar allra að gera það sem við getum til að stöðva hryllinginn. Þess vegna tel ég það eina rétta að stíga um borð með því fólki sem tilbúið er að sigla til Gaza til þess að rjúfa ólöglegu herkvína og opna fyrir flæði mannúðar­aðstoðar á svæðið,“ sagði Magga Stína áður en hún lagði af stað. 

Reyndu að komast til Gaza

Ísraelsher hefur stöðvað för fjölda báta sem reyndi að komast sjóleiðina til Gaza með mannúðar­aðstoð. Þau sem voru innanborðs voru handtekin, meðal annars Margrét Kristín – eða Magga Stína.  

Áhafnir bátanna komu úr ýmsum áttum og saman­stóðu meðal annars af aðgerða­sinnum, læknum, lista­mönnum og lögfræðingum. Um …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The current so-called ceasefire agreement is no agreement because it is totally biased against Palestinians and takes advantage of Palestinians aspirations! There is not even a mentioning of the ongoing war crimes Israel perpetrates daily and even hourly in the Westbank and East Jerusalem (or in Lebanon, etc.)!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið undanfarið ár