Forsetinn vill að flokkurinn hans „taki yfir kosningarnar“

Donald Trump sér fram á tap í þing­kosn­ingum síðar á árinu, en vill „þjóð­nýta“ kosn­ing­arnar í þágu eigin flokks.

Forsetinn vill að flokkurinn hans „taki yfir kosningarnar“
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í einni af mörgum flug­ferðum sínum frá Washington til West Palm Beach á Flórída, þar sem hann færði sig yfir í Mar-a-Lago á laug­ar­dag. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hvatti sam­flokks­menn sína í Repúblikana­flokknum í gær til að „taka yfir“ kom­andi kosn­ingar.

Yfir­lýs­ingin er enn ein til­raun stjórnar hans til að end­ur­skipu­leggja fram­kvæmd kosn­inga fyrir mik­il­vægar þing­kosn­ingar síðar á árinu, þar sem flokkur hans mælist með fallandi stuðn­ing.

Í Banda­ríkj­unum eru kosn­ingar á ábyrgð yfir­valda í hverju ríki fyrir sig, en ekki alrík­is­stjórn­ar­innar.

„Repúblikanar ættu að segja: ‚Við viljum taka yfir, við ættum að taka yfir kosn­ing­arnar,‘“ sagði Trump við Dan Bongino, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóra FBI, í hlað­varps­við­tali.

Trump sagði að repúblikanar „ættu að þjóð­nýta kosn­ing­arnar“ á 15 stöðum, þótt hann hafi ekki til­greint hvar.

Í við­tal­inu við Bongino ítrek­aði Trump ranga full­yrð­ingu sína um að hafa unnið for­seta­kosn­ing­arnar árið 2020, sem hann tap­aði fyrir Joe Biden.

Þing­kosn­ing­arnar sem áætl­aðar eru í nóv­em­ber stefna í að verða áskorun fyrir meiri­hluta repúblik­ana á þingi, þar sem harðar aðgerðir lög­reglu gegn …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár