Bandaríkin sögð fá parta af Grænlandi

Banda­ríkja­for­seti sagð­ist hafa náð sam­komu­lagi um alla eilífð.

Bandaríkin sögð fá parta af Grænlandi
Mark Rutte og Donald Trump Hol­lenski íhalds­mað­ur­inn Mark Rutte hefur náð góðum tengslum við Banda­ríkja­for­seta og er sagður hafa gaukað að honum þeirri hug­mynd að fá litla parta af Græn­landi til inn­limunar í Banda­ríkin. Mynd: AFP

Banda­ríski frétta­mið­ill­inn New York Times hefur eftir nafn­lausum heim­ildum innan NATO að til umræðu sé að Banda­ríkin fái litlar land­spildur af Græn­landi. 

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti venti kvæði sínu í kross í dag þegar hann sagð­ist ekki ætla að ráð­ast á Grænland og bakk­aði með fyr­ir­ætl­anir um að leggja 10% og 25% tolla á Evr­ópu­ríki sem hafa stutt full­veldi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Græn­lands and­spænis ásælni hans.

Kaka Repúblik­anaÞingmenn Repúblikan flokks­ins komu saman í menn­ing­ar­mið­stöðnni Trump Kennedy Center og borð­uðu Grænland prýtt banda­ríska fán­anum.

Í umfjöllun New York Times kemur fram að fram­kvæmda­stjóri NATO, Mark Rutte, sem þykir hafa góð tengsl við Trump, hafi ýtt hug­mynd­inni áfram. Tveir emb­ætt­is­mann­anna, sem sátu fund­inn, líktu þessu við her­stöðvar Bret­lands á Kýpur, sem eru taldar breskt yfir­ráða­svæði. Fram kom að óljóst væri hvort þetta væri hluti ramma­sam­komu­lags­ins sem Trump sagði hafa verið komið á.

Þegar beðið var um umsögn um samn­ing­inn og inni­hald hans sagði NATO í yfir­lýs­ingu að „við­ræður milli Dan­merkur, Græn­lands og Banda­ríkj­anna munu halda áfram með það að mark­miði að tryggja að Rússland og Kína nái aldrei fót­festu – hvorki efna­hags­lega né hern­að­ar­lega – á Græn­landi.“

Dönsk yfir­völd hafa ekki svarað fjöl­miðlum um sam­komu­lagið, sem liggur fyrir að á eftir að útfæra.

Í gær­kvöldi snæddu banda­rískir þing­menn úr flokki Repúblik­ana köku í líki Græn­lands, skreytta banda­ríska fán­anum. Þá fékk einn þing­mann­anna, Andy Ogles, verð­laun um kvöldið fyrir til­lögu sína um að gera Donald Trump kleift að sækj­ast eftir þriðja kjör­tíma­bili, sem er óheim­ilt sam­kvæmt stjórn­ar­skrá í dag. Þing­konan Anna Paulina Luna, sem situr í full­trúa­deild­inni fyrir Repúblikana­flokk­inn úr Flórída, birti mynd af kök­unni.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Sterk og ákveðin viðbrögð ESB virðast hafa skilað sér. En á endanum er það eingöngu á forræði grænlendinga, hvort þeir eru tilbúnir að selja einhverja ferkílómetra lands þeirra.
    0
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    úr fréttayfirferð Vísis (2026-01-21 21:45):

    > **NATO hafi ekkert umboð til samninga**
    > Þingkona Inuit Ataqatigiit á danska þjóðþinginu segir Atlantshafsbandalagið ekki hafa neinn rétt til að semja fyrir hönd Grænlands án aðkomu Grænlendinga.
    >
    > „Atlantshafsbandalagið hefur ekkert umboð til að semja um eitt né neitt án okkar Grænlendinga. Ekkert um okkur, án okkar. Og að Atlantshafsbandalagið eitthvað að segja um okkar land og málma er gjörsamlega út í hött,“ skrifar Aaja Chemnitz að því er Sermitsiaq greinir frá.

    þetta "framework of a future Greenland deal" er hugsanlega hreinn uppspuni til þess að flagga sem einhverskonar sigri nú þegar bakkað hefur verið með innlimunarvegferð Grænlands, ałlavega um sinn, og í besta fałli eitthvað smjaður spjałl Donalds við Mark Rutte, þó að Løkke segist hafa rætt við Rutte líka, Donald er svo gott sem búinn að jarða samband Bandaríkjanna við Grænlendinga og Dani, það er erfitt að ímynda sér að Bandaríkin fái nokkur sérkjör umfram það sem þeim stóð nú þegar til boða

    ałlavega benda skrif Aaja Chemnitz sterklega til þess að það að einhver sigurdíłl sé í sjónmáli fyrir Donald og stjórn hans sé hrein og bein lygi
    2
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Hvað segja Grænlendingar um þetta samkomulag? Ekki trúi ég því að Rutte geti gert samkomulag um Grænlands án aðkomu Grænlendinga.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár