Fyrrverandi stjóri NATO: Tímabært að hætta að smjaðra fyrir Trump

Það eina sem Trump virðir er afl, styrkur og ein­ing, segir Anders Fogh Rasmus­sen.

Fyrrverandi stjóri NATO: Tímabært að hætta að smjaðra fyrir Trump
Anders Fogh Rasmus­sen Var for­maður danska hægri flokks­ins Venstre og sat sem for­sæt­is­ráð­herra 2001 til 2009, áður en hann varð fram­kvæmda­stjóri NATO til 2014. Mynd: AFP

NATO stendur frammi fyrir stærstu kreppu í sögu sinni vegna hót­ana Donalds Trump um Grænland og tími „smjað­urs“ fyrir banda­ríska leið­tog­anum er lið­inn, sagði Anders Fogh Rasmus­sen, fyrr­ver­andi yfir­maður banda­lags­ins, við AFP á þriðju­dag.

„Þetta er ekki aðeins kreppa fyrir NATO, þetta er kreppa fyrir allt Atl­ants­hafs­sam­fé­lagið og áskorun fyrir heims­skip­an­ina eins og við höfum þekkt hana frá síð­ari heims­styrj­öld,“ sagði hann í við­tali á Alþjóða­efna­hags­ráð­stefn­unni í Davos.

„Það er fram­tíð NATO og fram­tíð heims­skip­an­ar­innar sem er í húfi.“

Rasmus­sen, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur sem leiddi NATO frá 2009 til 2014, hvatti núver­andi yfir­mann banda­lags­ins, Mark Rutte, og aðra evr­ópska leið­toga til að taka harð­ari afstöðu gagn­vart Banda­ríkja­for­seta eftir að hann hót­aði þeim ríkjum tollum sem styddu ekki yfir­töku hans á Græn­landi.

„Við verðum að breyta um stefnu og átta okkur á því að það eina sem Trump virðir er afl, styrkur og ein­ing,“ sagði Rasmus­sen.

„Það er nákvæm­lega það sem Evrópa ætti að sýna. Tími smjað­urs­ins er lið­inn. Nú er nóg komið.“

Ummæli Rasmus­sens koma á sama tíma og evr­ópskir leið­togar – þar á meðal Rutte – búa sig undir fundi með Trump í Davos til að reyna að telja hann ofan af áformum sínum.

Rasmus­sen full­yrti að enn væri hægt að „laga“ núver­andi kreppu sem skekur NATO og að banda­lagið gæti komið sterkara út á norð­ur­slóðum.

En hann sagði að aðgerðir Trumps hefðu þegar skapað „hug­rænt rof“ milli stjórn­valda í Washington og langvar­andi banda­manna þeirra í Evrópu, sem Rússland og Kína hagn­ist á.

„Þetta er ný staða sem er ólík öllum öðrum deilum sem við höfum séð í sögu NATO,“ sagði hann.

„Ef Trump myndi ráð­ast á Grænland og beita hern­að­ar­að­gerðum gegn Græn­landi, myndi það í raun þýða enda­lok NATO.“

Trump dragi athyglina frá Úkraínu

Rasmus­sen, 72 ára, sagði að Græn­lands­málið væri orðið „fjölda­trufl­un­ar­vopn“ eða „weapon of mass distraction“ fyrir Trump sem drægi athygl­ina frá stríði Rúss­lands í Úkraínu.

„Allir eru nú að tala um Grænland, sem er ekki raun­veru­leg ógn við öryggi Norður-Atl­ants­hafs­ins,“ sagði hann.

„Árás Rúss­lands á Úkraínu er raun­veru­lega ógnin og ekki ætti að draga athygl­ina frá þess­ari raun­veru­legu ógn.“

Fyrr­ver­andi danski for­sæt­is­ráð­herr­ann, sem leiddi land sitt frá 2001 til 2009, sagði að nú þyrfti að eiga „upp­byggi­legar við­ræður“ við Banda­ríkin um Grænland.

Hann sagði að danska og banda­ríska rík­is­stjórnin gætu upp­fært samn­ing sinn frá 1951 um stað­setn­ingu her­sveita á Græn­landi, opnað land­svæðið fyrir banda­rískum fyr­ir­tækjum til námu­vinnslu og sam­þykkt að halda Rúss­landi og Kína frá.

En það væri ekki hægt að gefa neitt eftir í grund­vall­ar­spurn­ing­unni um að láta land­svæði af hendi til Trumps.

„Við getum orðið við öllum óskum hans, nema einni,“ sagði Rasmus­sen.

„Grænland er ekki til sölu og sem fast­eigna­sér­fræð­ingur ætti hann að vita að ef eign er ekki til sölu er ekki hægt að kaupa hana.“

Rasmus­sen slær þannig annan tón en fyrr­ver­andi for­seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem hvatti íslensku rík­is­stjórn­ina til að forð­ast afstöðu í Græn­lands­mál­inu, segja sem minnst og reyna að ná eyrum Donalds Trump í gegnum þing­menn, hægri sinn­aðar hug­veitur og for­ystu­menn tækni­fyr­ir­tækja.

Jens Garðar Helgason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir með Ólafi Ragnari í Facebook-færslu í kvöld.

„Aldrei áður hefur verið eins brýnt fyrir íslensk stjórn­völd að eiga í góðum og stöð­ugum sam­skiptum við stjórn­völd í Banda­ríkj­unum. Ég tek undir með Ólafi Ragnari Gríms­syni frá því í Silfrinu í gær þar sem hann sagði að fyrir hvern einn fund í Brussel þá þurfi stjórn­völd að taka tvo í Washington.“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    First Rasmussen, then Stoltenberg, and now Rutte! Warmongers instead of diplomacy! Can it still get worse or is this the bottom line?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár