Samskiptin öll milli Trump og norrænu leiðtoganna

„Kveðja, Jonas og Alex,“ sagði í lok skila­boða for­sæt­is­ráð­herra Noregs og Finn­lands til Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem hann svar­aði með alvar­legri hótun.

Samskiptin öll milli Trump og norrænu leiðtoganna
Stubb og Trump Alex­ander Stubb, for­seti Finn­lands, hitti Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í Hvíta hús­inu í októ­ber. Þeir hafa náð vel saman, einna helst vegna sam­eig­in­legs áhuga á golfiðkun. Mynd: AFP

Norskir fjöl­miðlar hafa nú birt öll sam­skipti for­sæt­is­ráð­herra Noregs, Jonas Gahr Støre, og Alex­ander Stubb, for­seta Finn­lands, við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, sem leiddu til ógn­andi svars frá þeim síð­ar­nefnda. 

Norrænu leið­tog­arnir vildu freista þess að bera klæði á vopnin eftir að Trump til­kynnti um 10% og svo 25% refsi­tolla á nokkur Evr­ópu­ríki sem styðja full­veldi Græn­lands gegn ásælni Trumps og áformum um að inn­lima landið með valdi inn í Banda­ríkin.

„Kæri for­seti, kæri Donald – varð­andi sam­skiptin yfir Atl­ants­hafið – varð­andi Grænland, Gasa, Úkraínu – og tolla­til­kynn­ingu þína í gær.

Þú þekkir afstöðu okkar í þessum málum. En við teljum að við ættum öll að vinna að því að róa ástandið og draga úr spennu – það er svo mikið að ger­ast í kringum okkur þar sem við þurfum að standa saman.

Við leggjum til sím­tal við þig seinna í dag – ann­að­hvort með okkur báðum eða hvorum í sínu lagi – láttu okkur vita hvað þú kýst! Bestu kveðjur – Alex og Jonas.“

Svar Trumps hefur verið skilið sem svo að hann hafni full­veldi Dan­merkur og Græn­lands, og í raun fleiri ríkja. Þá felst í því und­ir­liggj­andi hótun um að beita hern­aði. 

Trump ávarp­aði aðeins Jonas Gahr Støre, þrátt fyrir að hann hafi átt í góðum sam­skiptum við Finn­lands­for­seta.

Skila­boðin voru eft­ir­far­andi, í gegnum sendi­herra:

„Kæri sendi­herra:

Trump for­seti hefur beðið um að eft­ir­far­andi skila­boð, sem deilt var með Jonas Gahr Støre for­sæt­is­ráð­herra, verði áfram­send til [nafn þjóð­höfð­ingja/rík­is­stjórn­ar­leið­toga] yðar

„Kæri Jonas: Í ljósi þess að land þitt ákvað að veita mér ekki frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir að hafa stöðvað ÁTTA stríð PLÚS, finnst mér ég ekki lengur skuld­bund­inn til að hugsa ein­göngu um frið, þótt hann verði ávallt í fyr­ir­rúmi, heldur get ég nú hugsað um það sem er gott og rétt fyrir Banda­ríki Norður-Ameríku. Danmörk getur ekki varið það land fyrir Rúss­landi eða Kína, og hvers vegna eiga þeir yfir­leitt „eign­ar­rétt“? Það eru engin skrif­leg skjöl, það er aðeins vegna þess að bátur lenti þar fyrir hund­ruðum ára, en við létum báta lenda þar líka. Ég hef gert meira fyrir NATO en nokkur annar frá stofnun þess, og nú ætti NATO að gera eitt­hvað fyrir Banda­ríkin. Heim­ur­inn er ekki öruggur nema við höfum ALGJÖRA og FULLA stjórn á Græn­landi. Takk fyrir! DJT for­seti“

Norsk stjórn­völd hafa reynt að leiða Trump fyrir sjónir að það er sér­stök nóbels­nefnd sem ákvarðar hverjir fá frið­ar­verð­laun Nóbels, en hún er skipuð af norska Stór­þing­inu.

Trump fékk í síð­ustu viku verð­launa­pen­ing­inn að gjöf frá Mariu Corinu Machado, frið­ar­verð­launa­hafa Nóbels, eftir að hafa kvartað sáran undan því að fá ekki verð­launin.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Svei mér þá ef hann á ekki meira bágt en Maduro
    2
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Táknmyndin um að endur-gefa friðarverðlaun Nóbels er ótrúlega truflandi ...grefur undan öllu fyrirtækinu ... bættu við hugmyndinni um hver nýi viðtakandinn var og holan sem verið er að grafa fer frá djúpum til botnlaus.
    0
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      Þessi "gjöf" er auðvitað algerlega marklaus, það er ekki hægt að yfirfæra verðlaunin þó það sé hægt að láta fólk fá pappír og orðu. En sammála, þetta grefur undan verðlaununum.
      1
    • Kristjana Magnusdottir skrifaði
      Er þaðkanski kanínurnar eða einhver önnur ennþá dýpri hola sem endar kanski sem botnlaust gímald?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár