„Móðgun við Bandaríkin“ fái hann ekki Nóbelsverðlaunin

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ist hafa endað sjö stríð.

„Móðgun við Bandaríkin“ fái hann ekki Nóbelsverðlaunin
Donald Trump Hélt ræðu fyrir yfir­mönnum hers­ins í dag, þar sem hann sagði meðal ann­ars að þeim væri vel­komið að yfir­gefa sal­inn, en þeir yrðu þá reknir. Mynd: AFP

Donald Trump for­seti sagði í dag að það yrði „móðgun“ við Banda­ríkin ef hann fær ekki frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir sjálf­skipað hlut­verk sitt í að leysa úr fjölda stríða.

Trump, sem hefur lengi sóst eftir verð­laun­unum sem verða afhent 10. októ­ber, ýtti aftur við mál­inu degi eftir að hann kynnti frið­ar­á­ætlun til að binda enda á stríðið á Gaza.

„Færðu Nóbels­verð­launin? Alls ekki. Þeir gefa þau ein­hverjum gaur sem gerði ekki neitt,“ sagði Trump í ræðu fyrir hund­ruðum hátt­settra banda­rískra her­for­ingja.

„Það væri mikil móðgun við landið okkar, það get ég sagt ykkur. Ég vil þau ekki, ég vil að landið fái þau,“ bætti hann við.

„Það ætti að fá þau, því það hefur aldrei verið neitt þessu líkt.“

Repúblikan­inn Trump hefur lengi verið pirr­aður yfir því að demókrat­inn Barack Obama hafi verið sæmdur Frið­ar­verð­launum Nóbels árið 2009. Trump hefur lengi haft horn í síðu Obamas og telja margir að stjórn­mála­fer­ill hans hafi haf­ist þegar hann hóf að ýta undir sam­sær­is­kenn­ingu um að Obama væri ekki rétti­lega banda­rískur rík­is­borg­ari.

Í ræðu sinni í dag end­ur­tók Trump nýlega full­yrð­ingu sína um að hann hafi leyst sjö stríð síðan hann tók aftur við emb­ætti í jan­úar.

Trump sagði að ef Gaza-áætl­unin sem hann kynnti ásamt Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, í Hvíta hús­inu í gær gengi upp, „þá verða þau átta, átta á átta mán­uðum. Það er ansi gott.“

Hamas hefur enn ekki brugð­ist við áætl­un­inni.

En lík­urnar á því að Trump vinni frið­ar­verð­laun Nóbels í ár eru taldar nálægt því engar í Ósló, þar sem verð­launin eru veitt.

„Það er algjör­lega óhugs­andi“
Oeivind Sten­er­sen sagn­fræð­ingur
um lík­urna á að Donald Trump fái frið­ar­verð­laun Nóbels í ár

„Það er algjör­lega óhugs­andi,“ sagði Oeivind Sten­er­sen, sagn­fræð­ingur sem hefur rann­sakað og skrifað bók um frið­ar­verð­laun Nóbels, í sam­tali við AFP.

Norska Nóbels­nefndin hefur einnig full­yrt að hún láti ekki her­ferð Trumps fyrir verð­laun­unum hafa áhrif á sig.

„Auðvitað tökum við eftir því að mikil fjöl­miðla­at­hygli bein­ist að ákveðnum kandídötum,“ sagði rit­ari nefnd­ar­innar, Kristian Berg Harp­viken, nýlega við AFP. „En það hefur í raun engin áhrif á umræður sem eiga sér stað í nefnd­inni.“

Stjórn Trumps taldi nýlega upp sjö stríð sem hún sagði hann hafa bundið enda á, milli Kambódíu og Taílands, Kósovó og Serbíu, Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Kongó og Rúanda, Pakist­ans og Indlands, Ísraels og Írans, Egypta­lands og Eþíópíu, og Armeníu og Aserbaídsjan.

En þótt Trump hafi verið fljótur að eigna sér heið­ur­inn af sumum, til dæmis með því að til­kynna vopna­hlé milli kjarn­orku­veld­anna Indlands og Pakist­ans í maí, eru margar full­yrð­ing­arnar alfarið eða að hluta til rangar, eins og farið er yfir í stað­reynda­könnun CNN um efnið.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár