Verðbólgan sunkar óvænt í nýrri mælingu

Vísi­tala neyslu­verðs lækk­aði um 0,48% í nóv­em­ber, langt um­fram spár.

Verðbólgan sunkar óvænt í nýrri mælingu
Verslað Jólaverslunin er hátindur einkaneyslu hvers árs, en eftir hana kemur gjarnan lækkun verðbólgu eða jafnvel lækkun á verðlagi. Mynd: Golli

Vísitala neysluverðs, sem sýnir verðbólgu, lækkaði um 0,48% í nóvember, sem telst jákvætt fyrir fasteignaeigendur með húsnæðislán. Þetta er mun jákvæðari verðlagsþróun en mældist í nóvember í fyrra, þegar vísitalan hækkaði um 0,09%, og langtum betri þróun en spáð var.

Lækkun vísitölunnar hefur bein áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána í janúar og vegur upp að fullu hækkun höfuðstóls þeirra sem á sér stað í desember vegna 0,47% hækkunar vísitölunnar í síðasta mánuði. Óljóst er hversu mikið gengur til baka af lækkuninni þegar útsöluáhrif hverfa í desember.

Greining Íslandsbanka hafði spáð hækkun vísitölunnar um 0,1% og að verðbólga yrði áfam „pikkföst“ næstu mánuði. Landsbankinn hafði spáð því að verðbólga hækkaði um 0,13%.

Helsta ástæða lækkunarinnar nú er minni hækkun húsnæðis en áður og lækkun sumra liða. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 14,3% (áhrif á vísitöluna -0,31%), húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. lækkaði um 2,2% (-0,11%) og föt og skór lækkuðu um 2,7% (-0,10%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (0,10%).

Hagstofan vekur athygli á því að áhrifa afsláttardaga í nóvember gætir meira að þessu sinni þar sem ekki er einungis um að ræða 2-3 daga eins og áður heldur tilboð sem teygja sig yfir marga daga og jafnvel vikur í mánuðinum.

Með lækkun vísitölunnar í nóvember er verðbólgan fallin niður í 3,7% úr 4,3% í síðasta mánuði. Hún hefur ekki verið lægri síðan í desember 2021, en engu að síður er hún 1,2% yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, sem lækkaði þó stýrivexti um 0,25% fyrr í mánuðinum, sem leiddi til sömu lækkunar á vöxtum sumra óverðtryggðra fasteignalána.

Gera má ráð fyrir hækkun vísitölu neysluverðs í desember, lækkun í janúar og ríflegri hækkun í febrúar þegar útsöluáhrif hverfa.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
5
ViðtalLífið á Grensás

„Þeg­ar þú ert með flók­in dæmi vilja kerf­in illa tala sam­an“

Yf­ir­lækn­ir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eft­ir út­skrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eft­ir þjón­ustu. Heilask­að­ar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyld­ur og nærsam­fé­lag­ið en gef­andi sé að sjá fólk halda aft­ur út í líf­ið eft­ir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár