Rússar kvarta undan aðkomu Evrópu

Fyrstu við­brögð rúss­neskra stjórn­valda við upp­færðu friðarplani Banda­ríkj­anna eru að fagna „sum­um þátt­um“ þess, en kvarta und­an „af­skipt­um“ Evr­ópu.

Rússar kvarta undan aðkomu Evrópu
Loftárás Fólk í héraðinu Saporitsía horfir á brennandi byggingar eftir loftárás Rússa í gær. Mynd: AFP

Rússar hafa séð nýjustu útgáfuna af áætlun Bandaríkjanna um að binda enda á stríðið í Úkraínu og líta jákvæðum augum á suma þætti hennar, en önnur atriði krefjast umræðu, að sögn talsmanns Kremlar í dag.

Í samtali við fréttamann rússneska ríkissjónvarpsins sagði Yuri Ushakov, aðstoðarmaður stjórnvalda í Kreml, að nýju drögin krefðust „sannarlega alvarlegrar greiningar“ og að Rússar hefðu ekki enn rætt þau við neinn.

„Hægt er að líta á suma þætti með jákvæðum augum, en margir krefjast sérstakra umræðna meðal sérfræðinga,“ sagði Ushakov við fréttamann ríkissjónvarpsins.

Nýjasta áætlun stjórnvalda í Washington, að afloknu samráði við Úkraínumenn, hefur ekki enn verið birt.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að um væri að ræða „fínstillta“ útgáfu af fyrri 28 punkta áætlun sem hefði falið í sér að Úkraína drægi sig til baka frá Donetsk-héraði og minnkaði her sinn, atriði sem úkraísnk stjórnvöld höfðu gagnrýnt.

Úkraína sagði síðar að „skilningur“ hefði náðst við Bandaríkin og að báðir aðilar hefðu bakkað með sum þeirra atriða sem þeir voru ósammála um eftir viðræður í Genf.

Bandarískir embættismenn munu nú funda með báðum aðilum í von um að ganga frá samkomulaginu, sagði Trump í gær.

Kreml staðfesti fyrr á miðvikudag að Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjanna, myndi heimsækja Moskvu í næstu viku til að funda með Vladimir Pútín, forseta Rússlands.

Ushakov gagnrýndi Evrópu sérstaklega fyrir að taka þátt í viðræðum um að binda enda á stríðið og sakaði þá um „afskiptasemi“ í friðarferlinu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
2
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?
Getur Ísland staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um náttúruvernd utan Evrópusambandsins?
3
Skýring

Get­ur Ís­land stað­ið við al­þjóð­leg­ar skuld­bind­ing­ar um nátt­úru­vernd ut­an Evr­ópu­sam­bands­ins?

Svo virð­ist sem Ís­land sæk­ist eft­ir því að ger­ast að­ili að al­þjóð­leg­um samn­ing­um en leiti síð­ur eft­ir því að inn­leiða regl­urn­ar eða upp­fylla skuld­bind­ing­ar sín­ar. Rætt við líf­fræð­ing­inn Trausta Bald­urs­son og Að­al­heiði Jó­hanns­dótt­ur, pró­fess­or í um­hverf­is­rétti.
Borgþór Arngrímsson
5
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár