Köstuðu grjóti að selum í Ytri Tungu

Ferða­menn náð­ust á mynd­band við að kasta steinum í átt að selum við fjör­una í Ytri Tungu á Snæ­fells­nesi.

Netverji birti í dag mynd­band sem hann tók við strönd­ina Ytri Tungu á Snæ­fells­nesi og sýnir hlæj­andi ferða­menn kasta grjóti í átt að selum sem svöml­uðu í fjör­unni.

Mynd­bandið birti við­kom­andi á Reddit-síð­unni „Visiting Iceland“. Á því sést mann­eskja kasta tveimur steinum á meðan önnur stendur hjá og tekur mynd.

Net­verj­inn spyr hvar til­kynna megi um svona hegðun. Aðrir á umræðu­þræð­inum benda hins vegar á að net­verj­inn hefði betur gripið inn í, rætt við ferða­menn­ina um hegðun þeirra og beðið þá um að hætta.

„Mér líður illa yfir að hafa ekki gripið inn í“

„Nei, því miður vorum við sjokkeruð og þau voru í stórum hópi,“ segir sá sem birti mynd­bandið um ferða­menn­ina. „Mér líður illa yfir að hafa ekki gripið inn í. Við mynd­uðum í mín­útu og færðum okkur nær. Þau sáu okkur mynda og stara illi­lega á þau. Þá fóru þau á bíla­stæðið. …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Ef vitað er hvaða ferðaskrifstofa var að ferja þetta fólk er hugsanlega hægt að ná í það og sekta duglega.
    0
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Já þetta eru ríkir útlendingar sem þessvegna mega þetta…þeir borguðu. Hælisleitendur gera svona aldrei en eiga að skammast sín 😵‍💫
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár