Hversdagslegt góðverk í miðborginni

Erlendir betl­arar biðja um reiðufé í borg­inni. Lög­reglan hefur nýlega tekið upp á því að halda utan um betl sem brota­flokk.

Hversdagslegt góðverk í miðborginni

Síðustu daga hefur orðið vart við erlenda betl­ara á götum borg­ar­innar. 

Í dag bað kona við verslun 10/11 í Aust­ur­stræti um reiðufé í bolla sem hún beindi að veg­far­endum. Einn vel­vilj­aður borg­ari keypti jógúrt fyrir kon­una og afhenti henni, sem hún þáði. Stöðugt færri ganga um með reiðufé á sér, sem gerir erf­ið­ara um vik að biðja sam­borg­ara um fjár­fram­lög á götum úti.

Í gær var önnur erlend kona í sömu erinda­gjörðum við verslun Hagkaups á Eiðis­torgi á Sel­tjarn­ar­nesi.

Í fyrra skap­að­ist umræða í hópi íbúa í mið­borg Reykja­víkur um veru erlendra betl­ara sem gistu við versl­anir Bónus og Krón­unnar við Laugaveg og Hall­veig­ar­stíg.

GóðverkVeg­far­andi keypti jógúrt fyrir kon­una sem biður um hjálp í Aust­ur­stræti.

Hvergi í heim­inum er minni notkun á reiðufé en á Íslandi, ef frá eru talin Noregur og …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár