Lögreglan rannsakar þvingað betl

Lög­reglan tekur upp skrán­ingu á betli sem brota­flokki. Grunur er um þvingað betl í einu til­felli – teg­und mansals þar sem fólk betlar fyrir ein­hvern annan.

Lögreglan rannsakar þvingað betl
Ólöglegt að betla Í gær leit­aði erlend kona til almennra borg­ara um fjár­fram­lög í Aust­ur­stræti í mið­borg Reykja­víkur. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki með beinum hætti að öðru leyti. Mynd: Golli

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar nú eitt til­felli þar sem grunur er um „þvingað betl“. Alls hefur lög­regl­unni borist 20 til­kynn­ingar á árinu um betl á almanna­færi, sem íslensk lög banna. 

„Betl er í raun­inni hægt að skrá tvenns konar. Annars vegar til­kynn­ing um betl, þar sem kannski veg­far­endur verða varir við betl og til­kynna það til lög­reglu. Hins vegar þegar við fáum ábend­ingu um eitt­hvað sem við teljum að sé betl sem teng­ist man­sali,“ segir Marta Kristín Hreið­ars­dóttir, deild­ar­stjóri í upp­lýs­inga- og áætl­ana­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Betl sem teng­ist man­sali nefn­ist þvingað betl. Það lýsir sér þannig að ein­hver er neyddur til að betla á almanna­færi og fær ekki að halda öllum þeim pen­ingum sem honum er gef­inn sjálfur. 

Betl nýr flokkur

Á Íslandi er ólög­legt að stunda betl á almanna­færi, en …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár