Þurfum að byggja eignir fyrir eldra fólk

Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur segir það mis­skiln­ing að hægt sé að byggja ódýrar íbúðir. Losa þurfi um reglu­verk, efla starf­semi félaga sem byggja hús­næði til að leigja og gefa eldra fólki kost á að minnka við sig innan hverfis.

Þurfum að byggja eignir fyrir eldra fólk
Ólafur Mar­geirs­son Hag­fræð­ingur segir barna­fólk ekki kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn því eldra fólk getur ekki minnkað við sig. Mynd: Bára Huld Beck

Hátt fast­eigna­verð á Íslandi ræðst af háu leigu­verði og háum vöxtum að mati Ólafs Mar­geirs­sonar hag­fræð­ings. Byggja þarf meira til að losa um stífl­una.

„Við erum ekki að byggja nema tæp­lega 3.000 íbúðir á ári en þyrftum að byggja svona 4.000, 4.500 á ári um það bil,“ segir hann. „Fyrsta vanda­málið er að við þurfum að byggja meira. Í öðru lagi er sér­stak­lega vanda­málið að við þurfum að byggja eignir sem eru hann­aðar fyrir eldra fólk. Ekki ungt fólk.“

Þetta er á skjön við þá umræðu sem hefur verið um að byggja þurfi sér­stak­lega hús­næði sem hentar fyrstu kaup­endum. „Það er því miður algengur mis­skiln­ingur að það sé hægt að byggja ódýrar íbúðir,“ segir Ólafur. „Það þarf að byggja sér­stak­lega fyrir eldra fólk út af lýð­fræði­legum ástæðum. Það þarf að byggja svona 1.000 til 1.200 íbúðir á ári í kringum 60 fer­metra og hanna þær fyrir eldra fólk, …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Verkamannabústaðakerfið var einskonar blanda af leigukerfi og eignakerfi sem er það besta sem Íslendingar hafa búið að við og það var pólitísk stefna valdaflokkana að brjóta það niður og tók það þá áratugi
    2
    • Jón Ragnarsson skrifaði
      Vitað er að framsóknarflokkurinn og sjálfstæðisflokkurinn eyðilögðu verkamannabústaðakerfið ! Ekkert nýtt þarna, nema að VG vildi halda þessum flokkum við völd !
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár