Hversu erfitt er að kaupa fasteign?

Ung ein­hleyp mann­eskja á með­al­launum þyrfti að eiga 18,4 millj­ónir í útborgun til að stand­ast greiðslu­mat á lít­illi íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hversu erfitt er að kaupa fasteign?

Tíðrætt er um það hvað það sé erfitt fyrir ungt fólk að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn í dag.

Ungt fólk hefur alla jafna minna fé á milli hand­anna en aðrir – er enn eða nýbúið í námi, oft að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aði og með tak­mark­aðan sparnað.

Á síð­ustu árum hefur þó róð­ur­inn þyngst all­veru­lega fyrir þennan hóp á fast­eigna­mark­aði með ört hækk­andi hús­næð­is­verði, háu vaxta­stigi í kjöl­far kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins og mik­illar ófyr­ir­séðrar fólks­fjölg­unar sem hefur valdið skorti á eignum og til­heyr­andi verð­hækk­unum á hús­næði. 

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði nýverið í Kast­ljósi að 2025 væri „ekki frá­bært ár til þess að koma sér þaki yfir höf­uðið“. En hversu erfitt er fyrir unga mann­eskju að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn á þessu herr­ans ári, 2025?

Gæti sparað rúmlega 3 milljónir árlega

Við skulum taka dæmi um mann­eskju á ald­urs­bil­inu 25–30 ára …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "279 þúsund fyrir verðtryggt lán (til 30 ára)"

    Þetta er ekki alveg rétt því samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands um hámark greiðslubyrðar fasteignalána má að hámarki miða við 25 ára lánstíma þegar greiðslubyrði verðtryggðra lána er reiknuð út. Þó að lán til lengri tíma séu ekki bönnuð er samt skylt að nota þetta sem viðmið í greiðslumati. Samkvæmt reiknivél Landsbankans yrði greiðslubyrðin sem þarf að miða við þá rétt rúmlega 300.000 kr. af verðtryggðu láni (til 25 ára) á kjörum dagsins í dag.

    Þó er einnig rétt að benda líka á að samkvæmt sömu reglum er heimilt að veita 5% af heildarfjárhæð veittra fasteignalána á hverjum ársfjórðungi til neytenda með greiðslubyrði umfram hámarkið. Á nýlegri vinnustofu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um framtíð húsnæðismála hvatti Seðlabankastjóri til þess að þetta svigrúm væri nýtt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár