Segja hugmyndir um einföldun regluverks alls ekki fela í sér einföldun

Félag heil­brigðis- og umhverf­is­full­trúa leggst gegn breyt­ingum á eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja sem ráð­herrar kynntu í vik­unni og mót­mælir því að þær feli í sér ein­földun eft­ir­lits. Þá sýni til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar „mikið skiln­ings­leysi á mála­flokknum og þeim fjöl­breyttu verk­efnum sem heil­brigð­is­eft­ir­lit sinnir“.

Segja hugmyndir um einföldun regluverks alls ekki fela í sér einföldun
Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, og Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra héldu sam­eig­in­legan blaða­manna­fund þar sem áformin voru kynnt. Mynd: Bára Huld Beck

„Sveit­ar­fé­lögin hafa haldið úti heil­brigð­is­eft­ir­liti síð­ast­liðin 124 ár. Lög­bundið hlut­verk heil­brigð­is­eft­ir­lits, að standa vörð um heil­næmi umhverfis fyrir íbúa sína, virð­ist ekki vera haft að leið­ar­ljósi í núver­andi til­lögum,“ segir Pétur Hall­dórs­son, heil­brigð­is­full­trúi og gjald­keri Félags heil­brigðis- og umhverf­is­full­trúa (FHU) um breyt­ingar á eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja sem ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar kynntu í vik­unni.

Hann segir til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar „sýna mikið skiln­ings­leysi á mála­flokknum og þeim fjöl­breyttu verk­efnum sem heil­brigð­is­eft­ir­lit sinnir“.

Breyt­ing­arnar snerta eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja þegar kemur að mat­væl­um, holl­ustu­hátt­um og meng­un­ar­vörn­um. Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra sagði af þessu til­efni: „Við erum að ein­falda reglu­verkið og gera eft­ir­lit með mat­vælum, holl­ustu­háttum og meng­un­ar­vörnum traust­ara og skil­virkara með hags­muni atvinnu­lífs­ins og neyt­enda að leið­ar­ljósi”.  Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, sagði þetta stærstu breyt­ingu á eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja sem ráð­ist hafi verið í svo ára­tugum skipti. 

FHU sendi í fram­hald­inu frá sér yfir­lýs­ingu þar sem segir að fund­ur­inn hafi verið hald­inn „undir yfir­skini ein­föld­unar á reglu­verki“ en „raun­ger­ist til­lagan hafi það hvorki ein­földun eft­ir­lits né fækkun eft­ir­lits­að­ila í för með sér. Aðilar sem í dag fá eft­ir­lit heil­brigð­is­eft­ir­lits sem stað­sett er í þeirra heima­byggð munu fram­vegis lúta eft­ir­liti tveggja rík­is­stofn­ana.“

Skorti samráð við sérfræðinga

Þá vill FHU „ítreka mik­il­vægi þess að áform um kerf­is­breyt­ingar af þessu tagi séu vel ígrunduð og nauð­syn þess að haft sé sam­ráð við sér­fræð­inga í heil­brigð­is­eft­ir­liti.“

Félag heil­brigðis- og umhverf­is­full­trúa leggst gegn til­lög­unni og vill ítreka mik­il­vægi þess að áform um kerf­is­breyt­ingar af þessu tagi séu vel ígrunduð og nauð­syn þess að haft sé sam­ráð við sér­fræð­inga í heil­brigð­is­eft­ir­liti. Þá segir að kynnt ein­földun virð­ist ein­blína fyrst og fremst á leyf­is­skylda starf­semi en ekki heil­brigð­is­eft­ir­lit almennt. 

„Líklegt er að eft­ir­lit frá tveimur stofn­unum myndi auka kostnað hjá rekst­ar­að­ilum, skil­virkni eft­ir­lits myndi minnka og hætt við að hags­munir almenn­ings muni gleym­ast en heil­brigð­is­eft­ir­lit sveit­ar­fé­laga hefur gegnum tíð­ina verið öfl­ugur málsvari hins almenna borg­ara,“ segir í til­kynn­ingu FHU sem hvetur ráðu­neytin til að end­ur­skoða áform sín.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár