Tveir eftirlitsaðilar í stað ellefu

Atvinnu­vega­ráð­herra og umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra kynntu í dag breyt­ingar á eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja þegar kemur að mat­vælum, holl­ustu­háttum og meng­un­ar­vörnum. Ráð­herr­arnir lögðu áherslu á að mark­mið breyt­ing­anna væri ekki fækkun eða til­færsla opin­berra starfa milli lands­hluta.

Tveir eftirlitsaðilar í stað ellefu
Jóhann Páll og Hanna Katrín héldu sam­eig­in­legan blaða­manna­fund ráðu­neyt­anna til að kynna breyt­ing­arnar. Mynd: Stjórnarráðið

„Þetta er stærsta breyt­ing á eft­ir­litsum­hverfi fyr­ir­tækja sem ráð­ist hefur verið í svo ára­tugum skiptir” segir Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. 

Jóhann Páll ásamt Hönnu Katrínu Frið­riks­son, atvinnu­vega­ráð­herra, kynntu í dag á sam­eig­in­legum fundi ráðu­neyt­anna áform um að gera  leyf­is­veit­ingar og eft­ir­lit með mat­vælum, holl­ustu­háttum og meng­un­ar­vörnum ein­fald­ara og skil­virkara auk þess að bæta þjón­ustu.

Samræmt eftirlit á landsvísu

Samkvæmt fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum verður ábyrgð á eft­ir­liti með holl­ustu­háttum og meng­un­ar­vörnum færð frá heil­brigð­is­eft­ir­liti til Umhverfis- og orku­stofn­unar og ábyrgð á eft­ir­liti með mat­vælum fær­ist frá heil­brigð­is­eft­ir­liti til Mat­væla­stofn­unar. Þannig verða eft­ir­lits­að­ilar tveir í stað ell­efu

Jóhann Páll og Hanna Katrín lögðu áherslu á að mark­mið breyt­ing­anna væri ekki fækkun eða til­færsla opin­berra starfa milli lands­hluta. Þvert á móti verði lagt upp með að standa vörð um störfin á lands­byggð­inni og leit­ast við að tryggja að störfin hald­ist í heima­byggð. Eftirlit á lands­vísu verður sam­ræmt og þjón­usta þannig bætt til muna. Þá verður útgáfa starfs­leyfa mið­læg og á vegum fyrr­greindra stofn­ana.

Meginhvatinn einföldun og skilvirkni

Þau sögðu að meg­in­hvat­inn við fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar sé að gera ferli vegna eft­ir­lits og leyf­is­veit­inga ein­fald­ara og skil­virkara og bæta þjón­ustu. Lengi hefur verið bent á að núver­andi fyr­ir­komu­lag sé flókið að upp­bygg­ingu, ábyrgð­ar­svið sé á tíðum óljóst, oft sé ósam­ræmi í aðferð­ar­fræði og erfitt fyrir þjón­ustu­þega að nálg­ast upp­lýs­ingar. Á und­an­förnum árum hafi fjöldi grein­inga og skýrslna varpað ljósi á að breyt­inga sé þörf.

„Við erum að ein­falda reglu­verkið og gera eft­ir­lit með mat­vælum, holl­ustu­háttum og meng­un­ar­vörnum traust­ara og skil­virkara með hags­muni atvinnu­lífs­ins og neyt­enda að leið­ar­ljósi” sagði Hanna Katrín.

Langur aðdragandi og áminning

Málið á sér langan aðdrag­anda og fram­kvæmd eft­ir­lits með mat­vælum hefur verið til skoð­unar í meira en ára­tug. ESA, Eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur í form­legu áminn­ing­ar­bréfi bent á að fyr­ir­komu­lag mat­væla­eft­ir­lits á Íslandi stand­ist ekki kröfur EES-samn­ings­ins. Helstu áhyggju­efni varða skort á sam­ræmi, skýrri ábyrgð og yfir­stjórn eft­ir­lits.

Áform ráð­herr­anna byggja meðal ann­ars á vinnu stýri­hóps sem skip­aður var full­trúum ráðu­neyt­anna, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Samtaka heil­brigð­is­eft­ir­lits­svæða á Íslandi, Samtaka atvinnu­lífs­ins og inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins. Þá sátu áheyrn­ar­full­trúar frá Mat­væla­stofnun og Umhverfis- og orku­stofnun einnig fundi hóps­ins og tóku virkan þátt í rýni. Áforma­skjal verður lagt fram í sam­ráðs­gátt síðar í þess­ari viku þar sem hægt er að senda inn umsagnir.

Skýrslu stýri­hóps­ins má lesa með því að smella hér.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár