Það sem gögnin sýna ekki

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar til­greinir tekju­hæsta 1% skatt­greið­enda. En nafn­tog­aðir auð­menn eru ekki á list­anum. Sumir borga skatta sína erlendis. Aðrir gætu hafa falið slóð sína með klókum hætti.

Það sem gögnin sýna ekki
Björgólfur Thor, Wessman og Jón Ásgeir Þrír af þekkt­ustu fjár­festum Íslands eru ekki á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar.

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar er unn­inn með öðrum hætti en tekju­listar ann­arra fjöl­miðla. Rit­stjórn Heim­ild­ar­innar gerir ítar­lega leit í álagn­ing­ar­skrám Skatts­ins til þess að finna 3.542 ein­stak­linga, tekju­hæsta 1% Íslands.

Þetta er gert með því að taka ekki aðeins til­lit til launa­tekna, heldur líka fjár­magnstekna, sem inni­halda meðal ann­ars arð­greiðslur til eig­enda fyr­ir­tækja, arf og sölu eigna.

Listi án fjár­magnstekna getur sýnt okkur þróun launa­tekna þeirra tekju­hæstu, sér­stak­lega innan ákveð­inna geira, en er vill­andi þegar kemur að því að sjá hvað rík­ustu Íslend­ing­arnir fá raun­veru­lega í vas­ann.

Árni Sig­urðs­sonFor­stjóri Marel er launa­hæsti for­stjór­inn en kemst ekki með tærnar þar sem topp­arnir á Hátekju­list­anum hafa hæl­ana.

Þannig var Árni Sig­urðs­son, for­stjóri Marel, kynntur í vik­unni sem tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn í fyrra. Árni var vissu­lega með háar launa­tekjur, rúmar 40 millj­ónir króna á mán­uði eða tæpar 482 millj­ónir á ári. En hann er aðeins í 42. sæti Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar þar sem tekjur hans blikna …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Mjög mikilvægt og frábært starf hjá Heimildinni. Hátekjulistinn er einstök heimild um þau tekjuhæstu og eignamestu í samfélaginu.
    22
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár