Segir leyndarmálið að giftast vel og gæta þess hverjum maður kynnist

List­dans­ar­inn og sagn­fræð­ing­ur­inn Ingi­björg Björns­dóttir er einn af tekju­hærri Hafn­firð­ingum árs­ins. Hún seg­ist lítið velta pen­ingum fyrir sér og hefur nýlokið bráð­merki­legu sagn­fræði­riti um list­dans­sögu á Íslandi.

Segir leyndarmálið að giftast vel og gæta þess hverjum maður kynnist
Ingi­björg Björns­dóttir Ingi­björg var lengi skóla­stjóri list­dans­skól­ans í Þjóð­leik­hús­inu þegar hann var enn starf­andi.

„Ég er nú bara hérna í berjamó nærri Þing­völlum, ég ætla að tína ber til þess að búa til blá­berja­sultu,“ segir Ingi­björg Björns­dóttir þegar blaða­maður hafði sam­band við hana, en hún er á lista yfir hund­rað efn­uð­ustu Hafn­firð­ing­ana sem greiddu hæstu skatt­ana í Hafn­ar­firði í ár.

Heild­ar­tekjur Ingi­bjargar voru 77 millj­ónir króna sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­inum. Ingi­björg er lík­lega mörgum kunn, en hún var list­dans­ari, sagn­fræð­ingur og skóla­stjóri List­dans­skóla Þjóð­leik­húss­ins eins og hann hét á árum áður. Hún hlaut ridd­ara­kross hinnar íslensku fálka­orðu fyrir fram­lag sitt til dans­list­ar­innar árið 2012 og heið­ursverð­laun Grímunnar árið 2020. Þá kom út bók eftir hana í síð­asta jóla­bóka­flóði. Þar skrá­setti hún í fyrsta skiptið dans­sögu Íslands enda sagn­fræð­ingur að mennt.

Ingi­björg hefur verið atkvæða­mikil þegar kemur að menn­ing­ar­lífi Íslands en seg­ist sinna smærri verk­efnum í kringum dans­inn í dag vegna ald­urs, en hún er fædd 1942.

Spurð hvort hún lumi á …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár