Tekjuhæstur í Eyjum eftir sölu í Ísfélaginu: „Ég get ekki kvartað“

Ágúst Bergsson er tekju­hæstur í Vest­manna­eyjum eftir sölu hluta­bréfa í Ísfé­lag­inu. Sjó­mennskan hefur alltaf verið stór hluti af líf­inu, hann er alinn upp af útgerð­ar­mönnum, fór fyrst á sjó að verða fjórtán og var lengi skip­stjóri.

<span>Tekjuhæstur í Eyjum eftir sölu í Ísfélaginu:</span> „Ég get ekki kvartað“
Árið 1990 Ágúst Bergsson var á þessum tíma skip­stjóri á Lóðsinum í Vest­manna­eyjum. Mynd: MBL

Þegar Ágúst Bergsson átt­aði sig á því að hann væri tekju­hæsti Vest­manna­ey­ing­ur­inn í ár kom hann af fjöllum. „Ég hafði ekki áttað mig á þessu,“ sagði hann og bætti því við að fjár­magnstekjur mætti rekja til þess að hann seldi hlut sinn í Ísfé­lag­inu í fyrra.

Ágúst er eft­ir­launa­þegi en heild­ar­tekj­urnar námu 495,9 millj­ónum í fyrra, með fjár­magnstekjum. „Það verður bara þetta árið hjá mér.“ 

Fór fjórtán ára á sjó

Hluta­bréf í Ísfé­lag­inu fékk hann í arf frá föður sínum og afa, auk þess að vinna sér inn fyrir þeim. Faðir hans var Bergur Elías Guð­jóns­son, sem varð hlut­hafi í Ísfé­lag­inu þegar útgerð­ar­menn tíu báta gengu til liðs við félagið í lok árs 1956. Árið 2002 greindi Morg­un­blaðið frá því að hann væri þá 89 ára gam­all enn að mæta á aðal­fundi félags­ins, elstur allra hlut­hafa. Sjó­mennskan var órjúf­andi hluti af líf­inu og við það ólst Ágúst …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár